Vikubyrjun 21. október
Kortavelta þróast nú í auknum mæli í takt við kaupmátt launa sem bendir til þess að landsmenn séu síður að eyða um efni fram. Kaupmáttur launa hefur aukist um 1,1% milli ára á fyrstu tveimur mánuðum þriðja ársfjórðungs sem er tæpu prósentustigi ofar aukningunni í kortaveltu á þriðja ársfjórðungi.
21. október 2019
Vikan framundan
- Á miðvikudag birta Marel, TM og VÍS uppgjör fyrir 3. árshluta.
- Á fimmtudag birtir Landsbankinn uppgjör fyrir 3. árshluta.
Mynd vikunnar
Kortavelta þróast nú í auknum mæli í takt við kaupmátt launa sem bendir til þess að landsmenn séu síður að eyða um efni fram. Kaupmáttur launa hefur aukist um 1,1% milli ára á fyrstu tveimur mánuðum þriðja ársfjórðungs sem er tæpu prósentustigi ofar aukningunni í kortaveltu á þriðja ársfjórðungi.
Það helsta frá fyrri viku
- Ísland var sett á gráan lista FATF.
- Seðlabankinn birti fundargerð peningastefnunefndar vegna vaxtaákvörðunar 2. október.
- Arion banki birti afkomuviðvörun.
- Seðlabankinn ákvað að fækka þeim aðilum sem átt geta viðskiptareikning hjá Seðlabankanum.
- Greiðslukortavelta jókst lítillega milli ára í september.
- Íbúðamarkaðurinn tók við sér í september.
- Vinnumálastofnun birti skráð atvinnuleysi í september.
- Við spáum 2,6% verðbólgu í október.
- ASÍ birti þjóðhagsspá.
- Hagstofan birti mánaðarlegan vöru- og þjónustujöfnuð fyrir júlí.
- Ferðamálastofa birti mánaðarlega skýrslu sína um ferðaþjónustuna í tölum.
- Í vikunni luku Hagar og Lykill fjármögnun skuldabréfaútboðum.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Hagtölur 21. október 2019 (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á
14. nóv. 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í nóvember og að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Flugfargjöld til útlanda og reiknuð húsaleiga koma til lækkunar að þessu sinni, en húsnæði án reiknaðrar húsaleigu til hækkunar. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar á næsta ári.
11. nóv. 2024
Skráð atvinnuleysi hækkaði lítillega á milli ára í október og halli á vöruskiptajöfnuði jókst aðeins. Hagstofan birti þjóðhagsspá og bæði Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki lækkuðu vexti. Í vikunni fáum við gögn um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll, niðurstöður úr væntingakönnun markaðsaðila og tölur um veltu greiðslukorta. Uppgjörstímabilið í Kauphöllinni heldur áfram.
8. nóv. 2024
Halli á vöruviðskiptum jókst lítillega á milli ára í október og mældist 49,4 ma.kr, en var 47,5 ma.kr. í október í fyrra. Uppsafnaður halli á vöruskiptum hefur aukist frá fyrra ári, en þó hægar í ár en síðustu ár, og var 330 ma.kr. í október, sem er einungis lítillega meira en mældist á sama tíma í fyrra þegar hann var 320 ma.kr.
6. nóv. 2024
Staðan á vinnumarkaði hefur haldist merkilega stöðug í gegnum hraðar breytingar í hagkerfinu og þrátt fyrir vaxtahækkanir síðustu ára hefur atvinnuleysi lítið aukist. Þó eru vísbendingar um að eftirspurn eftir launafólki hafi minnkað og laun hækka ekki jafn hratt og áður. Óvissa hefur aukist lítillega síðustu daga vegna átaka á opinberum vinnumarkaði.
5. nóv. 2024
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit sértryggðra skuldabréfa.
5. nóv. 2024
Ferðamönnum fjölgaði um tæplega prósent á þriðja ársfjórðungi, stærsta ferðaþjónustutímabili ársins, frá fyrra ári. Gistinóttum ferðamanna fækkaði hins vegar um tæpt prósent, en kortavelta á föstu verðlagi jókst um 2% á milli ára.
4. nóv. 2024
Íbúðafjárfesting hefur færst í aukana, starfsfólki fjölgar sífellt í byggingarstarfsemi, velta í greininni hefur aukist síðustu árin og innflutningur á byggingarefni er í hæstu hæðum. Íbúðauppbygging virðist nokkuð kröftug, enda er þörfin brýn - kjarnafjölskyldum hefur fjölgað mun hraðar en íbúðum síðustu ár.
4. nóv. 2024
Verðbólga lækkaði úr 5,4% niður í 5,1% í október, í samræmi við væntingar. Samhliða birtingu VNV tilkynnti Hagstofan að fyrirhugað kílómetragjald yrði tekið inn í vísitöluna. Í þessari viku birtir Vinnumálastofnum skráð atvinnuleysi í október, kosið verður um nýjan forseta í Bandaríkjunum, Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki tilkynna um vaxtaákvarðanir og uppgjörstímabilið í Kauphöllinni er áfram í fullum gangi.
1. nóv. 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
30. okt. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,28% á milli mánaða í október og verðbólga lækkar því úr 5,4% í 5,1%. Verð á mat og drykkjarvörum og flugfargjöld til útlanda höfðu mest áhrif til hækkunar. Reiknuð leiga hækkaði mjög lítið á milli mánaða. Kílómetragjald á bensín- og olíubíla verður með í verðmælingum Hagstofunnar.