18. júní 2018
Vikan framundan
- Á morgun birtir Þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs.
- Á miðvikudag birtir Þjóðskrá vísitölu leiguverðs.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan launavísitöluna.
Mynd vikunnar
Í vikunni lauk frumútboði hlutabréfa í Arion banka og hafa bréfin verið tekin til viðskipta í kauphöllinni. Arion er 18. félagið sem er skráð í kauphöllina og það næst stærsta á eftir Marel. Alls er markaðsvirði þessara tveggja fyrirtækja 42% af heildarmarkaðsvirði allra félaga í kauphöllinni.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Frumútboði Arion banka lauk í vikunni.
- Við gerum ráð fyrir að verðbólga í júní verði áfram rétt undir markmiði.
- Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum.
- Skráð atvinnuleysi var 2,2% í maí.
- Við birtum Hagsjár um vinnumarkaðurinn og launaþróun.
- Hagstofan birti tölur um fjármál hins opinbera á fyrsta ársfjórðungi.
- Lánamál ríkisins birtu mánaðarlegt markaðsupplýsingarit sitt.
- Rarik lauk skuldabréfaútboði, Arion banki lauk víxlaútboði, Landsbankinn lauk útboði sértryggðra skuldabréfa og Kvika banki lauk víxlaútboði.
- Seðlabankinn birti árlega skýrslu sína um fjármálainnviði.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
28. nóv. 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í nóvember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 5,1% í 4,8%, eða um 0,3 prósentustig. Reiknuð húsaleiga hafði mest áhrif til hækkunar vísitölunnar og flugfargjöld til útlanda mest áhrif til lækkunar.
26. nóv. 2024
Nýjustu gögn af íbúðamarkaði benda til þess að lítillega hafi dregið úr eftirspurn. Grindavíkuráhrifin eru líklega tekin að fjara út og hugsanlega heldur fólk að sér höndum nú þegar vaxtalækkunarferlið er nýhafið og loks glittir í ódýrari fjármögnun. Verðið gæti tekið hratt við sér þegar vextir lækka af meiri alvöru.
25. nóv. 2024
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku, í takt við væntingar. Í þessari viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu nóvembermánaðar en við eigum von á að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Á föstudag, þegar Hagstofan birtir þjóðhagsreikninga, kemur svo í ljós hvernig hagvöxtur þróaðist á þriðja ársfjórðungi.
19. nóv. 2024
Við spáum því að verðbólga lækki nokkuð hratt allra næstu mánuði og í nýlegri verðbólguspá gerum við ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar, sem er talsverð hjöðnun frá núverandi gildum. Það er því ágætt að staldra við og skoða hvaða þættir munu skýra lækkunina, gangi spá okkar eftir.
18. nóv. 2024
Við gerum ráð fyrir því að peningastefnunefnd lækki vexti um 0,50 prósentustig á miðvikudaginn. Verðmælingar vegna nóvembermælingar vísitölu neysluverðs fóru fram í síðustu viku, en við spáum því að verðbólga hjaðni úr 5,1% niður í 4,5%. Tæplega 5% fleiri erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í október í ár en í fyrra og kortavelta þeirra hér á landi jókst um 5,4% miðað við fast verðlag. Kortavelta Íslendinga jókst um 6,8% að raunvirði á milli ára í október.
14. nóv. 2024
Verðbólga hefur hjaðnað nokkuð kröftuglega á síðustu mánuðum og við spáum því að hún mælist 4,5% í nóvember. Loks má greina merki um hægari gang í neyslu heimilanna og íbúðaverð virðist vera á minna flugi en áður. Þá virðist eftirspurn eftir vinnuafli hafa minnkað auk þess sem hægt hefur á launahækkunum. Peningalegt aðhald hefur aukist statt og stöðugt og landsframleiðsla gæti orðið lítillega minni á þessu ári en því síðasta.
14. nóv. 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í nóvember og að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Flugfargjöld til útlanda og reiknuð húsaleiga koma til lækkunar að þessu sinni, en húsnæði án reiknaðrar húsaleigu til hækkunar. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar á næsta ári.
11. nóv. 2024
Skráð atvinnuleysi hækkaði lítillega á milli ára í október og halli á vöruskiptajöfnuði jókst aðeins. Hagstofan birti þjóðhagsspá og bæði Seðlabanki Bandaríkjanna og Englandsbanki lækkuðu vexti. Í vikunni fáum við gögn um fjölda ferðamanna um Keflavíkurflugvöll, niðurstöður úr væntingakönnun markaðsaðila og tölur um veltu greiðslukorta. Uppgjörstímabilið í Kauphöllinni heldur áfram.
8. nóv. 2024
Halli á vöruviðskiptum jókst lítillega á milli ára í október og mældist 49,4 ma.kr, en var 47,5 ma.kr. í október í fyrra. Uppsafnaður halli á vöruskiptum hefur aukist frá fyrra ári, en þó hægar í ár en síðustu ár, og var 330 ma.kr. í október, sem er einungis lítillega meira en mældist á sama tíma í fyrra þegar hann var 320 ma.kr.
6. nóv. 2024
Staðan á vinnumarkaði hefur haldist merkilega stöðug í gegnum hraðar breytingar í hagkerfinu og þrátt fyrir vaxtahækkanir síðustu ára hefur atvinnuleysi lítið aukist. Þó eru vísbendingar um að eftirspurn eftir launafólki hafi minnkað og laun hækka ekki jafn hratt og áður. Óvissa hefur aukist lítillega síðustu daga vegna átaka á opinberum vinnumarkaði.