Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Viku­byrj­un 16. des­em­ber 2024

Í vikunni fáum við vísitölur íbúðaverðs og leiguverðs frá HMS og vísitölu neysluverðs frá Hagstofunni en við gerum ráð fyrir lítilsháttar hjöðnun verðbólgu úr 4,8% í 4,7%. Um 9,3% fleiri erlendir ferðamenn komu til landsins í nóvember en á sama tíma í fyrra og skráð atvinnuleysi var 0,3 prósentustigum meira en það var í nóvember í fyrra. Seðlabanki Evrópu og Seðlabanki Sviss lækkuðu vexti í síðustu viku og það er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Bandaríkjanna og Englandsbanka í þessari viku.
Flutningaskip við Vestmannaeyjar
16. desember 2024

Vikan framundan

  • Á morgun birtir HMS vísitölu íbúðverðs og Seðlabankinn birtir tölur um greiðslumiðlun.
  • Á miðvikudag birtir HMS vísitölu leiguverðs og Hagstofan birtir veltu skv. VSK skýrslum fyrir VSK tímabilið sept.-okt. Seðlabanki Bandaríkjanna tekur ákvörðun um vexti og það verða birtar verðbólgutölu í Bretlandi.
  • Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir desember, við spáum að verðbólga lækki úr 4,8% í 4,7% og það er vaxtaákvörðun hjá Englandsbanka.

Mynd vikunnar

Verð á kakóbaunum hefur hækkað verulega í ár og er núna komið yfir 10.000 Bandaríkjadali tonnið. Til samanburðar hefur tonnið kostað milli 2.000 og 3.000 Bandaríkjadali í nokkur ár þar á undan. Þónokkrir þættir hafa valdið framboðsvanda á kakóbaunum. Óhagstæð veðurskilyrði í Vestur-Afríku hafa valdið því að síðustu uppskerur hafa verið dræmar, lagabreytingar til verndar skógum hafa dregið úr hvata bænda til þess að gróðursetja ný tré, skortur á áburði á heimsvísu vegna stríðsátaka í Úkraínu hefur minnkar framlegð núverandi trjástofna, trjástofninn í Vestur-Afríku er kominn til ára sinna og útbreiðsla veiru sem leggst á kakóbaunatré hefur leikið trjástofninn grátt. Það eru því margir samverkandi þættir sem hafa gert það að verkum að heimsmarkaðsverðið á kakói er orðið talsvert hærra en áður, hvert framhaldið verður er erfitt að segja til um, en mögulega gætu súkkulaðiunnendur áfram þurft að sætta sig við hærra verð.

Það helsta frá vikunni sem leið

Hagtölur og markaðsupplýsingar

Vikubyrjun 16. desember 2024 (PDF)

Fyrirvari
Þessi samantekt og/eða umfjöllun er markaðsefni ætlað til upplýsingar en ekki sem grundvöllur viðskipta. Markaðsefni þetta felur hvorki í sér fjárfestingarráðgjöf né óháða fjárfestingargreiningu. Lagakröfur sem gilda um fjárfestingarráðgjöf og fjárfestingargreiningu eiga því ekki við, þ.m.t. bann við viðskiptum fyrir dreifingu.

Upplýsingar um þróun gengis innlendra hlutabréfa, skuldabréfa og/eða vísitalna koma frá Nasdaq Iceland – Kauphöllinni. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á viðkomandi hlutabréf, skuldabréfaflokk eða vísitölu. Upplýsingar um þróun gengis erlendra fjármálagerninga, vísitalna og/eða sjóða koma frá aðilum sem Landsbankinn hefur metið áreiðanlega. Þróun gengis í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarþróun.

Upplýsingar um fyrri árangur sjóða Landsbréfa byggja á upplýsingum frá Landsbréfum. Á vef Landsbankans er hægt að nálgast nánari upplýsingar með því að smella á heiti viðkomandi sjóðs, þ.m.t. um árangur síðastliðinna fimm ára. Upplýsingar um fyrri árangur sjóða sýna nafnávöxtun, nema annað sé tekið fram. Ef fyrri árangur sjóða byggir á erlendum gjaldmiðli getur ávöxtun aukist eða minnkað vegna gengissveiflna. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur.

Verðbréfaviðskipti fela í sér áhættu og eru lesendur hvattir til að kynna sér Áhættulýsingu vegna viðskipta með fjármálagerninga og Stefnu Landsbankans um hagsmunaárekstra sem finna má á vef Landsbankans.

Landsbankinn hefur starfsleyfi sem viðskiptabanki samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og sætir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (www.sedlabanki.is/fjarmalaeftirlit).
Þú gætir einnig haft áhuga á
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.
Vikubyrjun
19. okt. 2026
Vikubyrjun 19. október 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.
19. okt. 2026
Hagspá til 2029: Hægur vöxtur en batnandi horfur
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.
15. okt. 2026
Spáum 5,9% verðbólgu í október
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.
Vikubyrjun
12. okt. 2026
Vikubyrjun 12. október 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.
Stýrivextir
7. okt. 2026
Óbreyttir vextir og sami tónn
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma.  Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar. 
Vikubyrjun
5. okt. 2026
Vikubyrjun 5. október 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum. 
Mánaðamót 2
1. okt. 2026
Mánaðamót 1. október 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Stýrivextir
30. sept. 2026
Spáum óbreyttum vöxtum í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.
29. sept. 2026
Verðbólga eykst í 5,9% - hækkun á eldsneytisverði hefur mest áhrif
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.