Vikubyrjun 14. október
Fjöldi nýrra íbúða sem koma inn á markaðinn á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist nokkuð hratt síðan 2011 þegar einungis 565 íbúðir komu inn á markaðinn. Í fyrra voru þetta um 2.300 íbúðir, en samkvæmt spá Samtaka iðnaðarins mun svipaður fjöldi koma inn á markaðinn á hverju ári milli 2019 og 2022.
11. október 2019
Vikan framundan
- Á þriðjudag birtir þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, Seðlabankinn birtir upplýsingar um greiðslumiðlun og Vinnumálastofnun skráð atvinnuleysi.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar vegna seinustu vaxtaákvörðunar.
Mynd vikunnar
Fjöldi nýrra íbúða sem koma inn á markaðinn á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist nokkuð hratt síðan 2011 þegar einungis 565 íbúðir komu inn á markaðinn. Í fyrra voru þetta um 2.300 íbúðir, en samkvæmt spá Samtaka iðnaðarins mun svipaður fjöldi koma inn á markaðinn ár hvert fram til 2022. Á sama tíma gerir mannfjöldaspá Hagstofunnar ráð fyrir að hægja muni á fjölgun íbúa hér á landi.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Seðlabankinn birtir seinni fjármálastöðugleikaskýrslu ársins.
- Veruleg umskipti urðu á fasteignamarkaði höfuðborgarsvæðisins í september.
- Icelandair birti flutningstölur fyrir september.
- TM undirritaði samning um kaup á Lykli fjármögnun.
- Seðlabankinn birti útreikning á raungengi í september.
- Lánamál ríkisins birtu Markaðsupplýsingar.
- Orkuveita Reykjavíkur keypti til baka eigin bréf í flokknum OR090524 og seldi bréf í flokknum OR180255 GB.
- Hagstofan birti upplýsingar um
- Í vikunni luku
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Hagtölur 14. október 2019 (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á

21. okt. 2026
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.

19. okt. 2026
Greiðslukortavelta heimilanna jókst um 0,9% á milli ára og áfram er mikil aukning í kortaveltu Íslendinga erlendis. Ný loðnuráðgjöf dregur talsvert úr ráðlögðum veiðum en upphaflega ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Í dag birtum við hagspá til ársins 2029.

19. okt. 2026
Við spáum því að hagvöxtur verði afar hófstilltur í ár og á næsta ári, eða 1,3% og 1,5%. Aukin verðbólga, sem á einna helst rætur að rekja til stríðsátaka úti í heimi og gjaldahækkana innanlands, hefur ýtt vaxtastiginu upp og hægt á hagkerfinu. Atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar.

15. okt. 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,49% í október og að ársverðbólga standi í stað í 5,9%. Hækkun á eldsneytisverði skýrir hækkunina að langmestu leyti. Nýtt komugjald í sjúkra-, tal-, og iðjuþjálfun hefur einnig áhrif til hækkunar. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga og flugfargjöld til útlanda hafi áhrif til lækkunar á milli mánaða, sem ná þó ekki að vega upp hækkun á eldsneytisverði.

12. okt. 2026
Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum í síðustu viku. Fjöldi starfandi stóð nánast í stað á milli ára í ágúst og skráð atvinnuleysi í september var 0,5 prósentustigum hærra en í fyrra.

7. okt. 2026
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum og ákvörðunin var einróma. Verðbólga hefur hækkað á milli funda, úr 5,3% í 5,9%, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum og opinberra hækkana. Hækkunin hefur verið í takt við væntingar.

5. okt. 2026
Verðbólga mældist 5,9% í september og hefur mælst yfir 5% allt þetta ár. Í vikunni er vaxtaákvörðun hjá Seðlabanka Íslands. Við spáum því að peningastefnunefnd haldi vöxtum óbreyttum.

1. okt. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. sept. 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.

29. sept. 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.