13. september 2021 - Hagfræðideild
Vikan framundan
- Í vikunni fara fram verðmælingar vegna VNV, en Hagstofan birtir mælinguna þriðjudaginn 28. september.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn tölur um greiðslumiðlun.
- Á fimmtudag birtir Hagstofan tölur um fjármál hins opinbera.
Mynd vikunnar
Verð á áli hækkaði í síðustu viku í kjölfar valdaráns hersins í Gíneu, en um fjórðungur af öllu báxíti sem er notað í álframleiðslu í heiminum kemur frá Gíneu. Þar áður hafði álverð hækkað samfellt síðan í maí á síðasta ári þegar það fór undir 1.500 dollara á tonn. Undir lok síðustu viku fór verðið síðan yfir 2.800dollara á tonn í fyrsta sinn síðan ágúst 2008.
Efnahagsmál
- Allir nefndarmenn peningastefnunefndar studdu tillögu seðlabankastjóra um 0,25 prósentu hækkun á fundi nefndarinnar 23.-24. ágúst, en Gunnar Jakobsson og Gylfi Zoëga hefðu þó fremur kosið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur.
- Skráð atvinnuleysi var 5,5% í ágúst og lækkaði um 0,6 prósentur milli mánaða. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum (9,7%) og á höfuðborgarsvæðinu (6,7%).
- 152 þúsund erlendir farþegar fóru um Leifsstöð í ágúst, sem er 40% minna en í ágúst 2019. Frá áramótum hafa 336 þúsund erlendir farþegar farið um Leifstöð sem er fækkun um 27% milli ára. Um tvær af hverjum fimm brottförum í ágúst voru Bandaríkjamenn.
- Icelandair Group birti flutningstölur fyrir ágúst.
- Hagdeild HMS birti mánaðarskýrslu.
- Hagstofan birti bráðabirgðatölur um vöruviðskipti í ágúst, ítarlegri flokkun um þjónustuviðskipti 2020, og tilraunatölfræði um gistinætur á hótelum í ágúst.
- Seðlabankinn birti talnaefni um gjaldeyrismarkaðinn, krónumarkaðinn, raungengi, og erlenda stöðu Seðlabankans.
Fjármálamarkaðir
- Lánamál ríkisins birtu Markaðsupplýsingar.
- Reykjavíkurborg, Reitir og Eik luku skuldabréfaútboði.
- Stjórn Skeljungs ákvað frekari uppskiptingu rekstrareininga.
- Hagar endurfjármögnuðu skuldabréf á sem er á gjalddaga í október.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
25. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst, samkvæmt gögnum sem HMS birti í síðustu viku. Vísitalan lækkaði þó nokkuð í júní og júlí og hækkunin kom því nokkuð á óvart. Í næstu viku ber hæst birting Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs á fimmtudag.
20. sept. 2023
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% milli mánaða í ágúst. Árshækkun vísitölunnar fór úr 0,8% í 2,0%. Undirritaðir kaupsamningar á höfuðborgarsvæðinu voru 9,6% færri í júlí en í sama mánuði í fyrra. Vísitalan er hærri en við gerðum ráð fyrir við gerð verðbólguspár fyrir septembermánuð og því færum við hana upp og spáum 7,8% ársverðbólgu í stað 7,7%.
18. sept. 2023
Um 282 þúsund erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í ágúst. Ef sumarmánuðirnir eru teknir saman hafa aðeins einu sinni komið fleiri ferðamenn að sumri, árið 2018. Samkvæmt nýjustu þjóðhagsreikningum Hagstofunnar jókst þjónustuútflutningur á fyrstu tveimur fjórðungum ársins um 21%, og má rekja allan þann vöxt til ferðaþjónustunnar.
18. sept. 2023
Í síðustu viku komu tölur um brottfarir frá Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og veltu greiðslukorta. Í þessari viku ber hæst vísitala íbúðaverðs, sem kemur á þriðjudag, og yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands, sem gefin verður út á miðvikudaginn.
15. sept. 2023
Nýjar kortaveltutölur bera með sér frekari vísbendingar um að verulega sé að hægja á innlendri eftirspurn. Heildarkortavelta íslenskra heimila dróst saman um 3,4% milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga innanlands var 4,3% minni en í ágúst í fyrra á föstu verðlagi og hefur nú dregist saman sex mánuði í röð. Erlendis jókst kortavelta Íslendinga um 0,7% á milli ára og kortaveltujöfnuður er jákvæður um 19,2 milljarða.
14. sept. 2023
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,07% milli mánaða í september og að ársverðbólga standi í stað og verði áfram 7,7%. Útsölulok hafa aftur mest áhrif til hækkunar milli mánaða í september samkvæmt spánni. Það sem helst dregur spána niður er árstíðabundin lækkun á flugfargjöldum til útlanda. Við gerum ráð fyrir að verðbólga lækki áfram næstu mánuði og verði 6,6% í desember.
11. sept. 2023
Í síðustu viku birti Seðlabankinn fundargerð peningastefnunefndar. Samkvæmt henni greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að hækka vexti um 0,50 prósentustig á síðasta fundi nefndarinnar og hefði heldur kosið að hækka þá um 0,25 prósentustig. Í þessari viku berast gögn yfir fjölda brottfara um Leifsstöð, skráð atvinnuleysi og kortaveltu.
4. sept. 2023
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit um sértryggð skuldabréf.
4. sept. 2023
Verðbólga jókst úr 7,6% í 7,7% samkvæmt ágústmælingu Hagstofunnar. Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi samkvæmt nýjum þjóðhagsreikningum sem Hagstofan birti í vikunni, en hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi mældist 7,1%. Minni vöxtur einkaneyslu skýrir að stórum hluta minni hagvöxt á öðrum ársfjórðungi.
31. ágúst 2023
Hagvöxtur mældist 4,5% á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar. Eins og við var að búast benda tölurnar til þess að hægt hafi á hagkerfinu, en hagvöxtur mældist 7,1% á fyrsta ársfjórðungi. Vaxtahækkanir hafa tekið að tempra innlenda eftirspurn á sama tíma og hægt hefur á vexti kaupmáttar á síðustu misserum. Einkaneysla jókst örlítið en vegna hraðrar fólksfjölgunar dróst hún saman á mann.