Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 5,5% verð­bólgu í apríl

Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.
Verðbólga
16. apríl 2026

Hækkun ársverðbólgu í mars mátti að stærstum hluta rekja til hækkandi eldsneytisverðs vegna átakanna við Persaflóa. Við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram nú í apríl. Hærri flugfargjöld hafa einnig áhrif til hækkunar á ársverðbólgu gangi spáin eftir. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga verði til lækkunar á ársverðbólgu þriðja mánuðinn í röð og að verð á matarkörfunni hækki nokkuð minna en síðustu mánuði og hafi einnig áhrif til lækkunar á ársverðbólgu.

Eldsneytisverð tekur annað stökk í apríl

Samkvæmt verðmælingu okkar hefur verð á bensíni og dísilolíu hækkað um 13,1% frá því í síðasta mánuði. Hækkun á bensíni og dísilolíu má sem fyrr segir rekja til hækkandi heimsmarkaðsverðs.

Lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti hefur tímabundin áhrif til lækkunar á verðbólgu

Mikið veltur á verðbólgumælingunni á allra næstu mánuðum. Í ágúst nk. skapast heimild til þess að segja upp kjarasamingum á stórum hluta vinnumarkaðarins ef verðbólga mælist yfir 4,7% og ekki tekst að semja um önnur viðbrögð. Mikil hækkun á verðbólgu síðustu mánuði auk nýlegrar hækkunar á eldsneytisverði hefur verulega aukið líkurnar á því að verðbólga mælist yfir því marki.

Ríkisstjórnin hefur boðað að virðisaukaskattur á eldsneyti verði lækkaður úr 24% í 11% frá 1. maí og út ágúst. Yfirlýst markmið er að lækka eldsneytisverð til að draga úr kostnaði heimila og fyrirtækja, en ljóst er að lækkun eldsneytisverðs á tímabilinu sem um ræðir gæti aukið líkur á því að verðbólga mælist undir 4,7%. Þó er óvíst að það dugi til. Við gerum ekki ráð fyrir að aðgerðin hafi áhrif á ákvarðanir peningastefnunefndar, enda einungis um tímabundið úrræði að ræða og líklegt að eldsneytisverð hækki þegar það er afnumið.

Flugfargjöld hafa hækkað töluvert

Flugfargjöld hafa hækkað töluvert síðustu mánuði en í mars mældust þau um 23% dýrari en á sama tíma í fyrra. Páskarnir voru snemma í apríl og féllu fyrir utan verðkönnunarviku Hagstofunnar. Við teljum þó að áhrifa páskahækkana muni gæta í aprílmælingunni. Samkvæmt spánni hækka flugfargjöld um tæplega 17% á milli mánaða og verða flugfargjöld til útlanda því um 19% hærri en á sama tíma í fyrra. Minna flugframboð og hækkandi olíuverð munu áfram hafa áhrif á flugfargjöld á næstu mánuðum.

Matarkarfan hækkar minna

Verð á mat og drykkjarvörum hefur hækkað töluvert á fyrstu mánuðum ársins. Samkvæmt verðmælingum verðlagseftirlits ASÍ hefur verð á matarkörfunni hækkað um 0,2% frá því í mars og við gerum ráð fyrir því í spá okkar. Gangi það eftir verður það töluvert minni hækkun á matarkörfunni en síðustu mánuði.

Húsnæðisliðurinn áfram til friðs

Reiknuð húsaleiga hefur hækkað minna en við höfum spáð síðustu mánuði. Við höfum því lækkað spá okkar til næstu mánaða úr 0,5% mánaðarhækkun í 0,4%. Minni hækkun á reiknaðri húsaleigu er í takt við rólegri fasteignamarkað, þar sem bæði hefur hægt á íbúða- og leiguverðsþróun.

Spá um þróun VNV í apríl 2026

       
Undirliður Vægi í VNV Breyting (spá) Áhrif (spá)
Matur og drykkjarvara 15,4% 0,2% 0,03%
Áfengi og tóbak 2,5% 0,0% 0,00%
Föt og skór 3,5% 0,0% 0,00%
Húsnæði án reiknaðrar húsaleigu 9,4% 0,4% 0,04%
- Reiknuð húsaleiga 20,5% 0,4% 0,08%
Húsgögn og heimilisbúnaður 4,1% 0,1% 0,00%
Heilsa 4,0% 0,3% 0,01%
Ferðir og flutningar (annað) 5,8% 1,3% 0,07%
- Kaup ökutækja 4,6% 0,2% 0,01%
- Bensín og díselolía 2,9% 13,0% 0,34%
- Flugfargjöld til útlanda 2,7% 16,7% 0,40%
Upplýsingar og fjarskipti 4,2% -0,7% -0,03%
Afþreying, íþróttir og menning 9,1% 0,6% 0,05%
Menntun 1,0% 0,0% 0,00%
Hótel og veitingastaðir 5,5% 0,6% 0,03%
Fjármálaþjónusta 1,2% 0,7% 0,01%
Umhirða og félagsþjónusta 3,4% 0,0% 0,00%
Alls 100,0%   1,05%

Verðbólguhorfur óbreyttar fyrir utan aðgerðir ríkisins

Verðbólguspáin til næstu mánaða er aðeins lægri en sú sem við birtum 26. mars, eftir birtingu síðustu verðbólgumælingar. Spáin er að mestu óbreytt fyrir aprílmánuð en lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hefur mest áhrif á lægri spá í maí. Við gerum ráð fyrir að vísitalan hækki um 1,05% í apríl, lækki síðan um 0,36% í maí, hækki um 0,53% í júní og um 0,35% í júlí. Gangi það eftir mun verðbólga mælast 5,5% í apríl, 4,9% í maí og 4,6% í júní og júlí.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Greiningardeildar Landsbankans hf. (greiningardeild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Greiningardeildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Greiningardeild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
20. apríl 2026
Merki um að innlend neysla sé að minnka
Kortavelta jókst um 0,8% á milli ára í mars að raunvirði. Eins og síðustu mánuði jókst kortavelta erlendis talsvert en þetta var annar mánuðurinn í röð þar sem kortavelta innanlands dregst saman. Við spáum hægari vexti í einkaneyslu ásamt hóflegum launahækkunum á næstu árum.
Vikubyrjun
20. apríl 2026
Vikubyrjun 20. apríl 2026
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð, samkvæmt hagspá sem við birtum fyrir helgi. Við eigum von á hægfara hjöðnun verðbólgu og að stýrivextir haldi áfram að hækka á árinu.
17. apríl 2026
Hagspá til 2028: Hagkerfi í hægum vexti
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.
Vikubyrjun
13. apríl 2026
Vikubyrjun 13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.
Vikubyrjun
16. mars 2026
Vikubyrjun 16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
Stýrivextir
12. mars 2026
Spáum hækkun stýrivaxta í næstu viku 
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting.