Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Spá­um 0,25% hækk­un stýri­vaxta í októ­ber 

Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um 0,25 prósentur og að þeir fari úr 1,25% upp í 1,5% við næstu ákvörðun. 
Seðlabanki Íslands
1. október 2021 - Greiningardeild

Þetta yrði þriðja vaxtahækkun Seðlabankans í röð en Seðlabankinn hækkaði vexti í maí og ágúst um 0,25 prósentustig í hvort skiptið. Í fundargerð vegna síðustu ákvörðunar kom fram að tveir nefndarmenn hefðu frekar kosið 0,5 prósentustiga hækkun en hefðu fallist á tillögu Seðlabankastjóra um 0,25 prósentustiga hækkun.

Þú gætir einnig haft áhuga á
16. nóv. 2026
Olían finnur sér leið  
Olíuflutningar frá Persaflóasvæðinu hafa tekið verulega við sér undanfarna mánuði og nálgast magnið sem flutt var áður en átökin brutust út. Mun stærri hluti olíunnar fer nú frá svæðinu um hjáleiðir fram hjá Hormússundi og flutningarnir eru flóknari, áhættusamari og dýrari en áður. Framboð olíuafurða hefur tekið hægar við sér en framboð á hráolíu vegna truflana á olíuhreinsun og flutningum. Það hefur komið sérstaklega niður á framboði á dísilolíu, sem hefur hækkað mun meira í verði en hráolía. 
Vikubyrjun
16. nóv. 2026
Vikubyrjun 16. nóvember 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð er fjöldi erlenda ferðamanna það sem af er ári næstum sá sami og í fyrra. Áfram eru merki um kólnun á vinnumarkaði, en skráð atvinnuleysi í október var 0,4 prósentustigum hærra en í október í fyrra. Á miðvikudag er síðasta vaxtaákvörðun ársins hjá peningastefnunefnd Seðlabankans og við spáum óbreyttum vöxtum.
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.