2. júlí 2021 - Hagfræðideild
Landsbankinn seldi bréf í flokknum LBANK CB 25 að nafnvirði 500 m.kr. á kröfunni 3,61% (0,54% álag á ríki) í útboði 8. júní. Íslandsbanki og Arion banki héldu ekki útboð á sértryggðum skuldabréfum í júní.
Veltan á eftirmarkaði í júní var 10,2 ma.kr., sem er svipað og í maí (12,6 ma.kr). Frá áramótun er ávöxtun á verðtryggðu bréfunum milli 2,2% og 4,7%. Á óverðtryggðu bréfunum er ávöxtun milli -0,6% og 0,7%.
Lesa Hagsjána í heild:
Þú gætir einnig haft áhuga á
22. apríl 2024
Nafnverð íbúða hefur hækkað um 5,2% á síðustu 12 mánuðum, samkvæmt nýrri vísitölu íbúðaverðs,og raunverð íbúða er lítillega hærra en á sama tíma í fyrra.
15. apríl 2024
Verðbólga hjaðnar þó nokkuð í apríl, úr 6,8% í 6,1%, en breytist lítið næstu mánuði þar á eftir og verður 5,9% í júlí, samkvæmt okkar nýjustu verðbólguspá. Þótt vaxtahækkanir hafi slegið nokkuð á eftirspurn má enn greina kraft í hagkerfinu og spennu á vinnumarkaði. Þá mælast verðbólguvæntingar enn vel yfir markmiði.
11. apríl 2024
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,61% á milli mánaða í apríl og að ársverðbólgalækki töluvert, eða úr 6,8% í 6,1%. Mest áhrif til hækkunar í spá okkar hafa reiknuð húsaleiga, flugfargjöld til útlanda og matarkarfan. Apríl í fyrra var stór hækkunarmánuður og þar sem við gerum ráð fyrir töluvert minni mánaðarhækkun nú lækkar ársverðbólga töluvert. Á móti gerum við ekki ráð fyrir því að verðbólga lækki mikið næstu mánuði þar á eftir og búumst við því að hún verði 5,9% í júlí.
8. apríl 2024
Um 14% fleiri ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í febrúar síðastliðnum en í febrúar í fyrra. Ferðamenn gistu þó skemur en áður, því skráðum gistinóttum fækkaði um 2,7% á milli ára í febrúar.
3. apríl 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. apríl 2024
Um 30% fyrirtækja vilja fjölga starfsfólki á næstu sex mánuðum, samkvæmt nýjustu könnun Gallup meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins sem var framkvæmd í mars. Hlutfallið eykst úr 23% frá síðustu könnun sem var gerð í desember.
26. mars 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,8% milli mánaða í mars og við það jókst ársverðbólga úr 6,6% í 6,8%. Langmest áhrif til hækkunar í mælingunni má rekja til hækkunar á íbúðaverði, og þá sérstaklega utan höfuðborgarsvæðisins. Verð á nýjum bílum hafði mest áhrif til lækkunar í mars.
25. mars 2024
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti á miðvikudag að stýrivöxtum yrði haldið óbreyttum í 9,25%. Ákvörðunin var í samræmi við spá okkar, en tónninn í yfirlýsingunni var harðari en við bjuggumst við.
18. mars 2024
Gögn síðasta árs benda til þess að þeir ferðamenn sem hingað komu hafi að meðaltali dvalið skemur en árið á undan en aftur á móti eytt meiru á dag.
15. mars 2024
Útflutningur hefur alltaf verið mjög mikilvægur fyrir Íslendinga og íslenskan efnahag. Lengst af var fiskurinn okkar aðal útflutningsvara, svo bættist álið við og nú síðasta áratuginn eða svo hefur ferðaþjónusta rutt sér til rúms og er orðin stærsta einstaka útflutningsvara Íslendinga. Á síðustu árum hefur annar útflutningur, þ.e. útflutningur sem ekki heyrir undir neinn þessara flokka, vaxið hratt og raunar hraðar en ferðaþjónustan, þó faraldurinn torveldi samanburðinn aðeins.