Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Íbúða­verð hækk­ar hratt um­hverf­is höf­uð­borg­ar­svæð­ið

Íbúðaverð hefur víða hækkað meira en á höfuðborgarsvæðinu, til að mynda í Árborg og á Akranesi. Íbúðasala eykst nú einna mest á Suðurlandi þar sem nú seljast hátt í 40% fleiri íbúðir en fyrir ári síðan. Talsverður fjöldi íbúða er nú á fyrstu stigum uppbyggingar í sveitarfélögum umhverfis höfuðborgarsvæðið og því viðbúið að framboð aukist á næstunni.
Selfoss
1. nóvember 2021 - Greiningardeild

Íbúðamarkaður hefur verið líflegur um land allt síðustu misseri. Lágir vextir og breyttar neysluvenjur vegna faraldursins hafa aukið eftirspurn eftir húsnæði verulega, sala hefur aukist og verð hækkað. Hækkanir einskorðast ekki við höfuðborgarsvæðið, heldur má sjá talsverðar hækkanir í þéttbýliskjörnum um land allt.

Samkvæmt athugun úr Verðsjá Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á bilinu 9-36% milli ára á þriðja ársfjórðungi í þéttbýliskjörnum umhverfis höfuðborgarsvæðið. Mest var hækkunin í Árborg (36%), og næstmest á Akranesi (20%). Árborg sker sig nokkuð úr. Ef horft er til þróunar frá upphafi árs 2015 má sjá að íbúðaverð hefur hækkað mest í Árborg og því næst í Reykjanesbæ og á Akranesi.

Þrátt fyrir þessar hækkanir er fermetraverð íbúða enn talsvert lægra í kjörnum utan höfuðborgarsvæðisins, á bilinu 24-37% lægra. Minnstu munar í Árborg þar sem fermetraverð er að jafnaði 24% lægra en á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir ári síðan var fermetraverðið hins vegar 34% lægra, áður en íbúðaverð í Árborg tók að hækka hraðar en á höfuðborgarsvæðinu. Munurinn á verðlagi eftir svæðunum fer því minnkandi þó enn sé talsvert ódýrara að kaupa húsnæði í Árborg samanborið við höfuðborgarsvæðið.

Mikil sala og miklar verðhækkanir hafa hvatt til íbúðauppbyggingar og samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins eru nú 33% fleiri íbúðir í byggingu umhverfis höfuðborgarsvæðið samanborið við stöðuna fyrir ári síðan. Fjöldi íbúða í byggingu á fyrstu stigum (að fokheldu) hefur aukist um 96% milli ára. Til samanburðar mælist samdráttur í íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu upp á 18% milli ára, en fjöldi íbúða í byggingu á fyrstu stigum eykst líkt og annars staðar.

Lesa Hagsjána í heild:

Hagsjá: Íbúðaverð hækkar hratt umhverfis höfuðborgarsvæðið

Þú gætir einnig haft áhuga á
Stýrivextir
12. nóv. 2026
Spáum aftur óbreyttum vöxtum
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga er enn mikil og mælist jafn há og við síðustu vaxtaákvörðun, en það er fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana að mæld verðbólga hefur ekki hjaðnað. Við teljum að það sé farið að styttast í vaxtalækkun.
12. nóv. 2026
Spáum 6,0% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,41% í nóvember og að verðbólga hækki í 6,0%. Flugfargjöld til útlanda lækka alla jafna í nóvember og munu hafa mest áhrif til lækkunar gangi spáin eftir. Við gerum ráð fyrir að nóvembertilboð setji svip sinn á mælinguna, en dagur einhleypra er í miðri verðsöfnunarvikunni.
Vikubyrjun
9. nóv. 2026
Vikubyrjun 9. nóvember 2026
Fjöldi starfandi samkvæmt skrám hélst óbreyttur á milli ára í september. Verðbólga jókst á evrusvæðinu og hefur ekki mælst hærri í þrjú ár. Englandsbanki hækkaði vexti.
5. nóv. 2026
Vinnumarkaður kólnar og það hægir á launahækkunum
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað, atvinnuleysi hefur aukist og vinnumarkaðurinn sýnir skýr merki kólnunar. Kólnun í hagkerfinu hefur dregið úr hækkunartakti launa og í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir hóflegri launahækkunum næstu árin. Þrátt fyrir það teljum við að kaupmáttur aukist áfram, samhliða minni verðbólgu og meiri uppgangi í atvinnulífinu á síðari hluta spátímans.
4. nóv. 2026
Minna af fiski en meiri verðmæti
Útflutningsmagn sjávarafurða hefur dregist saman undanfarin ár, en hátt afurðaverð hefur að miklu leyti vegið upp samdráttinn. Í fyrra jukust útflutningsverðmæti sjávarafurða þrátt fyrir að útflutningsmagnið hefði minnkað. Í nýlegri hagspá gerum við ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í útflutningi sjávarafurða í ár og á næsta ári. Ef lokaráðgjöf fyrir loðnu verður nær upphafsráðgjöfinni gæti samdráttur þó snúist í vöxt og hagvaxtarhorfur batnað.
Mánaðamót 2
2. nóv. 2026
Mánaðamót 2. nóvember 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
2. nóv. 2026
Vikubyrjun 2. nóvember 2026
Verðbólga hélst óbreytt í 5,9% í október, í samræmi við væntingar. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar. Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á milli ára í september. 
29. okt. 2026
Verðbólga áfram 5,9%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,44% á milli mánaða í október og verðbólga mælist áfram 5,9%, í takt við okkar spá. Verðbólga án húsnæðis mælist nú einnig 5,9%. Mikil hækkun á eldsneyti er áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar.
Vikubyrjun
26. okt. 2026
Vikubyrjun 26. október 2026
Íbúðaverð hækkaði um rúmlega 1% og leiguverð lækkaði um tæplega 1% á milli mánaða í september. Í næstu viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu októbermánaðar og ýmis félög birta uppgjör.
21. okt. 2026
Hóflegar nafnverðshækkanir á íbúðamarkaði og raunverð lækkar áfram
Framboð íbúða hefur aukist og dregið hefur úr eftirspurn. Við gerum ráð fyrir að íbúðamarkaður verði rólegur og að verðhækkanir verða hóflegar á næstu misserum. Raunverð íbúða hefur lækkað ellefu mánuði í röð miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Við gerum ráð fyrir samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og á næsta ári.