Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hag­sjá: Velta við­skipta­hag­kerf­is­ins jókst um 7,7% í fyrra

Veltan í hagkerfinu var að vaxa svipað og hagvöxtur á síðasta ári. Þetta var 9. árið í röð sem vöxtur viðskiptahagkerfisins mælist jákvæður sé hann mældur á föstu verðlagi.
2. apríl 2019

Samantekt

Velta í viðskiptahagkerfinu nam 4.374 mö.kr. á síðasta ári borið saman við um 4.062 ma.kr. árið 2017 og jókst hún um 7,7% milli ára. Á föstu verðlagi nam vöxturinn 4,9% en til samanburðar eru bráðabirgðatölur Hagstofunnar yfir hagvöxt síðasta árs upp á 4,6%. Þetta var 9. árið í röð sem vöxtur viðskiptahagkerfisins mælist jákvæður sé hann mældur á föstu verðlagi. Síðast var hann neikvæður árið 2009 en þá dróst veltan saman um 13% á föstu verðlagi.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Velta viðskiptahagkerfisins jókst um 7,7% í fyrra (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Smiður
31. okt. 2025
Minnkandi spenna á vinnumarkaði og minni fólksfjölgun
Eftirspurn eftir vinnuafli hefur minnkað og dregið hefur úr hækkun launa. Atvinnuleysi hefur aukist smám saman og rólegri taktur í atvinnulífinu hefur endurspeglast í hægari fólksfjölgun. Kaupmáttur hefur aukist jafnt og þétt og við teljum að þótt hægi á launahækkunum komi kaupmáttur til með að aukast áfram á næstu árum. Mikill kraftur er í neyslu landsmanna, kortavelta eykst sífellt og Íslendingar hafa aldrei farið í fleiri utanlandsferðir.
Paprika
30. okt. 2025
Verðbólga jókst umfram væntingar
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,47% á milli mánaða í október og verðbólga jókst úr 4,1% í 4,3%. Vísitala neysluverðs hækkaði meira en við bjuggumst við, ekki síst reiknuð húsaleiga og verð á mat og drykk. Skammtímaspá okkar gerir nú ráð fyrir að verðbólga haldist í 4,3% út árið, en aukist svo í janúar og mælist 4,5%.
27. okt. 2025
Vikubyrjun 27. október 2025
Íslenska hagkerfið verður í hægum vaxtartakti á næstu árum gangi hagspá sem við birtum í síðustu viku eftir. Á fimmtudag koma verðbólgutölur fyrir október og við eigum von á að verðbólga hækki úr 4,1% í 4,2%.
Hagspá október 2025
22. okt. 2025
Kólnandi kerfi en kraftmikil neysla
Hagvöxtur verður 1,5% á þessu ári og 1,7% á því næsta, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans. Hagvöxtur verður ekki síst drifinn áfram af neyslu innanlands en á sama tíma er útlit fyrir smám saman minnkandi spennu í atvinnulífinu. Verðbólga reynist áfram þrálát næstu misseri og ekki eru horfur á að hún komist niður í markmið Seðlabankans á spátímabilinu. Því má áfram búast við háum raunstýrivöxtum.
Greiðsla
20. okt. 2025
Vikubyrjun 20. október 2025
Kortavelta Íslendinga jókst um 7,6% að raunvirði á milli ára í september. Á fyrstu níu mánuðum ársins hefur kortavelta heimila verið um 5,2% meiri en á sama tímabili í fyrra, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Í vikunni birtir Greiningardeild Landsbankans nýja hagspá til ársins 2028. HMS birtir vísitölu íbúðaverðs, vísitölu leiguverðs og mánaðarskýrslu.  
Flugvél
16. okt. 2025
Spáum 4,2% verðbólgu í október
Við spáum því að verðbólga aukist lítillega í október, úr 4,1% í 4,2%. Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni hafa flugfargjöld til útlanda, reiknuð húsaleiga og matarkarfan. Gangi spáin eftir verður október níundi mánuðurinn í röð þar sem verðbólga er á bilinu 3,8% til 4,2%. Við teljum að verðbólga verði áfram á þessu bili næstu mánuði.
Fjölskylda við matarborð
13. okt. 2025
Vikubyrjun 13. október 2025
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í síðustu viku, eins og við var búist. Þó mátti greina aukna bjartsýni í yfirlýsingu nefndarinnar. Skráð atvinnuleysi var 3,5% í september og jókst um 0,1 prósentustig á milli mánaða. Brottförum erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 0,5% í september og utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði um 14%.
Play
6. okt. 2025
Vikubyrjun 6. október 2025
Fall Fly Play hf. var stærsta fréttin í síðustu viku. Um 400 manns misstu vinnuna og má búast við að atvinnuleysi aukist um um það bil 0,2 prósentustig þess vegna. Við búumst ekki við verulegum þjóðhagslegum áhrifum af falli Play. Peningastefnunefnd kemur saman á miðvikudaginn og við búumst við að stýrivöxtum verði áfram haldið í 7,50%.  
Seðlabanki Íslands
2. okt. 2025
Þrálát verðbólga kallar á óbreytta vexti
Við spáum því að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur haldist á þröngu bili í kringum 4% frá því í febrúar og horfur eru á nær óbreyttri verðbólgu á næstu mánuðum. Áfram má greina skýr merki um þenslu í hagkerfinu og nær óhugsandi að peningastefnunefnd telji tímabært að halda vaxtalækkunarferlinu áfram. 
1. okt. 2025
Mánaðamót 1. október 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.