27. september 2019
Samantekt
Við teljum að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka vexti um 0,25 prósentustig á næsta fundi nefndarinnar, en ákvörðunin verður tilkynnt miðvikudaginn 2. október. Lækkun verðbólguvæntinga, hjöðnun verðbólgunnar ásamt styrkingu krónunnar frá síðasta fundi, kallar á að næsta skref í vaxtalækkunarferlinu verði tekið í október.
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á

17. sept. 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.

14. sept. 2026
Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.

9. sept. 2026
Um 150 milljarða króna halli mældist á viðskiptum við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins. Þrátt fyrir það hefur krónan styrkst. Skýringin er líklega sú að viðskiptum við útlönd fylgir ekki alltaf samsvarandi gjaldeyrisflæði. Viðskiptajöfnuður mælir tekjur og gjöld samkvæmt uppgjörsreglum en gengið ræðst af raunverulegum og væntum kaupum og sölu á gjaldeyri.

7. sept. 2026
Hagkerfið dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samkvæmt fundargerð peningastefnunefndar ræddi nefndin að hækka vexti um 0,25 prósentustig eða halda þeim óbreyttum á fundi sínum í ágúst.

1. sept. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

31. ágúst 2026
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samdráttur í vöruútflutningi, sér í lagi áli og sjávarafurðum skýrir samdráttinn að mestu. Minni vöxtur var í einkaneyslu. Fjárfesting, önnur en atvinnuvega, dróst saman.

31. ágúst 2026
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst. Samkvæmt VSK-skýrslum jókst velta í helstu útflutningsgreinum í maí og júní, að ferðaþjónustu undanskilinni. Mörg félög í kauphöllinni birtu uppgjör í síðustu viku. Í dag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir annan ársfjórðung.

27. ágúst 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.

26. ágúst 2026
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.

24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.