Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hag­sjá: Spá­um lækk­un stýri­vaxta

Hagfræðideild Landsbankans telur að vextir Seðlabankans verði lækkaðir á síðasta vaxtaákvörðunarfundi ársins í næstu viku og að þessi vaxtalækkun verði jafnframt sú síðasta í núverandi vaxtalækkunarferli sem hófst í ágúst á síðasta ári. Verði spá Hagfræðideildar um 0,25 prósentustiga lækkun vaxta að veruleika fara vextir Seðlabankans niður í 4%.
8. desember 2017

Samantekt

Við gerum ráð fyrir að peningastefnunefnd ákveði að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig á vaxtaákvörðunarfundi sínum 13. desember næstkomandi og að það verði síðasta vaxtalækkunin í núverandi vaxtalækkunarferli.

Nær öruggt má telja að val nefndarinnar þessu sinni standi milli þess að halda vöxtum óbreyttum eða lækka þá um 0,25 prósentustig. Talsverð óvissa er um hvor ákvörðunin verður ofan á enda hægt að færa sannfærandi rök fyrir hvorutveggja.

Það sem einna helst styður við áframhaldandi vaxtalækkanir er að verðbólga hefur nú verið undir verðbólgumarkmiðinu frá því í febrúar 2014 eða í 46 mánuði samfleytt. Að meðaltali hefur verðbólgan verið 1,75% á tímabilinu eða 0,75 prósentustigum undir verðbólgumarkmiðinu.

Helstu rökin fyrir óbreyttum vöxtum, að okkar mati, er óvissa um ríkisfjármálin í ljósi þess að ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum og ekki liggur fyrir fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Þar sem peningastefnunefndin hefur gert fremur lítið úr þessum óvissuþætti í síðustu fundargerðum sínum teljum við að samanvegið séu örlítið meiri líkur á vaxtalækkun nú en óbreyttum vöxtum.

Á síðasta fundi nefndarinnar var ákveðið að halda vöxtum óbreyttum. Síðan þá hefur það helst gerst að krónan hefur veikst örlítið, verðbólgumæling fyrir nóvember sem sýndi 1,7% ársverðbólgu og birtir hafa verið þjóðhagsreikningar fyrir fyrstu 3 ársfjórðunga ársins sem benda til minni eftirspurnar og framleiðsluspennu en Seðlabankinn spáir fyrir árið í ár. Auk þess hefur verið mynduð ríkisstjórn í landinu.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Spáum lækkun stýrivaxta

Þú gætir einnig haft áhuga á
27. ágúst 2026
Verðbólga eykst í 5,6% - hækkanir á breiðum grunni
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.
26. ágúst 2026
Velta eykst í útflutningsgreinum en innlend eftirspurn kólnar
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.
13. ágúst 2026
Verðbólguspá fyrir ágúst: óvissa og mikið í húfi
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.
Vikubyrjun
10. ágúst 2026
Vikubyrjun 10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.