Á fyrsta ársfjórðungi nam fjöldi erlendra ferðamanna 481 þúsund borið saman við 452 þúsund á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 6,3% milli ára. Fara þarf aftur fyrir upphaf uppsveiflunnar í ferðaþjónustu til að finna minni vöxt, en á þriðja ársfjórðungi 2010 fækkaði ferðamönnum um 1,3% borið saman við sama fjórðung árið áður.
Vöxturinn hefur leitað mjög skýrt niður á við
Sé litið til einstakra mánaða á fyrsta fjórðungi þessa árs sést að fjölgunin á 12 mánaða grundvelli hefur leitað stöðugt niður á við. Þannig var fjölgunin 8,5% í janúar, 7,9% í febrúar og 3,1% í mars, sem er minnsti vöxtur síðan í mars 2011, en það var fyrsta ár uppsveiflunnar. Ef farið er aftur til síðasta árs sést svipuð þróun, þ.e. skýr leitni til lækkunar. Segja má að ákveðin kaflaskil hafi orðið í maí þegar vöxturinn fór úr því að vera á bilinu 45-75% í janúar-apríl niður í 17,5%. Á tímabilinu maí til október á síðasta ári lá vöxturinn á bilinu 15-19%. Segja má að önnur kaflaskil hafi síðan orðið í nóvember þegar vöxturinn fór niður fyrir 10% og hefur hann haldist þar síðan. Árleg meðalfjölgun erlendra ferðamanna hér á landi á tímabilinu 1949-2017 nemur 9,3%. Marsmánuður var fjórði mánuðurinn í röð þar sem fjölgunin er undir þessu sögulega meðaltali. Það eru nokkuð skýr merki þess að toppnum í fjölgun ferðamanna hafi verið náð og framundan sé mun lægri vöxtur.
Lesa Hagsjána í heild
Hagsjá: Minnsta fjölgun ferðamanna síðan fyrir uppsveiflu (PDF)