Hagsjá: Mánaðaryfirlit yfir gjaldeyrismarkaðinn
Eftir að hafa veikst nokkuð haustið 2018 hefur krónan verið tiltölulega stöðug það sem af er ári. Seðlabankinn greip tvisvar inn í á markaðnum í síðustu viku. Þann 26. mars brást hann við veikingu krónunnar með því að selja 9 m.evra (1,2 ma.kr.).
5. apríl 2019
Samantekt
Eftir að hafa veikst nokkuð haustið 2018 hefur krónan verið tiltölulega stöðug það sem af er ári. Frá áramótum hefur gengið gagnvart evru haldist á bilinu 132 og 140 krónur. Seðlabankinn greip tvisvar inn í á markaðnum í síðustu viku. Þann 26. mars brást hann við veikingu krónunnar með því að selja 9 m.evra (1,2 ma.kr.). Í kjölfar gjaldþrots WOW air 28. mars seldi Seðlabankinn síðan 6 m.evra (0,8 ma.kr.).
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á

27. ágúst 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.

26. ágúst 2026
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.

24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.

21. ágúst 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.

19. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.

18. ágúst 2026
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.

17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.

13. ágúst 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.

13. ágúst 2026
Við spáum því að verðbólga mælist 5,5% í ágúst. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað aftur síðastliðinn mánuð og við gerum því ekki ráð fyrir lækkun á eldsneytisverði eins og áður. Við gerum jafnframt ráð fyrir að aukin eftirspurn í tengslum við sólmyrkvan hafi áhrif á flugfargjöld til útlanda, gistiþjónustu og á bílaleiguverð. Hækkun skráningargjalda í opinbera háskóla hefur einnig áhrif til hækkunar í mánuðinum.

10. ágúst 2026
Störfum í Bandaríkjunum fækkaði á milli mánaða í júlí. Í þessari viku verða meðal annars birtar tölur um brottfarir um Keflavíkurflugvöll og skráð atvinnuleysi í júlí. Þá munu nokkur félög einnig birta uppgjör.