Hagsjá: Kröftugur hagvöxtur á fyrri árshelmingi
Enn mælist kröftugur mikill vöxtur í hagkerfinu og var hann 6,4% á fyrri árshelmingi borið saman við sama tímabil í fyrra. Spár gera hins vegar ráð fyrir að hægja muni á vextinum á seinni árshelmingi en hæsta hagvaxtarspáin fyrir árið í heild hljómar upp á 4,1% vöxt.

7. september 2018
Samantekt
Hagvöxtur mældist 7,2% á öðrum ársfjórðungi borið saman við sama tímabil í fyrra. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,6% vaxtar á fyrsta ársfjórðungi. Vöxturinn á öðrum fjórðungi var fyrst og fremst drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu.
Á fyrri árshelmingi mældist 6,4% hagvöxtur en til samanburðar nam hagvöxtur allt árið í fyrra 4%. Hagvöxtur á fyrri árshelmingi var borinn af einkaneyslu, fjárfestingu og útflutningi.
Lesa Hagsjána í heild
Þú gætir einnig haft áhuga á

18. sept. 2026
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.

17. sept. 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.

14. sept. 2026
Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.

9. sept. 2026
Um 150 milljarða króna halli mældist á viðskiptum við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins. Þrátt fyrir það hefur krónan styrkst. Skýringin er líklega sú að viðskiptum við útlönd fylgir ekki alltaf samsvarandi gjaldeyrisflæði. Viðskiptajöfnuður mælir tekjur og gjöld samkvæmt uppgjörsreglum en gengið ræðst af raunverulegum og væntum kaupum og sölu á gjaldeyri.

7. sept. 2026
Hagkerfið dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samkvæmt fundargerð peningastefnunefndar ræddi nefndin að hækka vexti um 0,25 prósentustig eða halda þeim óbreyttum á fundi sínum í ágúst.

1. sept. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

31. ágúst 2026
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samdráttur í vöruútflutningi, sér í lagi áli og sjávarafurðum skýrir samdráttinn að mestu. Minni vöxtur var í einkaneyslu. Fjárfesting, önnur en atvinnuvega, dróst saman.

31. ágúst 2026
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst. Samkvæmt VSK-skýrslum jókst velta í helstu útflutningsgreinum í maí og júní, að ferðaþjónustu undanskilinni. Mörg félög í kauphöllinni birtu uppgjör í síðustu viku. Í dag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir annan ársfjórðung.

27. ágúst 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.

26. ágúst 2026
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.