Hag­sjá: Fast­eigna­verð tek­ur kipp eft­ir ró­legt sum­ar

Samkvæmt nýjum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu um 1% í ágúst. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 2,4% og verð á fjölbýli um 0,5%. Hækkanir frá fyrra ári eru áfram mjög miklar. Verð á fjölbýli hækkaði um 18,4% á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 20,8%.
20. september 2017

Samantekt

Í gær birti Þjóðskrá Íslands tölur um fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu í ágúst. Hækkanir voru nú meiri en verið hefur undanfarna mánuði. Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1% í ágúst. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 2,4% og verð á fjölbýli um 0,5%. Hækkanir frá fyrra ári eru enn mjög miklar. Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur verð á fjölbýli hækkað um 18,4% á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 20,8%. Heildarhækkunin nemur 19,1%, sem er svipað og í síðasta mánuði. Á þann mælikvarða hefur lækkun fasteignaverðs stöðvast, a.m.k. í bili.

Verð á fjölbýli hækkaði í síðasta mánuði eftir litlar breytingar síðustu tvo mánuði. Það virðist því sem meiri ró sé yfir þeim markaði en verið hefur, en engu að síður er hækkunin um 0,5% nú töluverð. Verð á sérbýli hækkar enn í svipuðum takti og verið hefur, eða um u.þ.b. 20% á ári.

Vangaveltur um mögulega kólnun á markaðnum fengu því smá mótbyr með ágústtölunum, þar sem hækkanirnar nú eru enn miklar í sögulegu samhengi.

Raunverð fasteigna hefur þannig hækkað um u.þ.b. 23% á einu ári, frá ágúst 2016 til ágúst 2017.

Sé fjöldi viðskipta til lengri tíma skoðaður er nokkuð ljóst að tími samfellds vaxtar milli ára er liðinn, allavega í bili. Sé meðalfjöldi viðskipta á þessu ári borinn saman við sömu stærðir á síðustu árum má sjá að dregið hefur úr viðskiptum bæði með fjölbýli og sérbýli.

Töluverð umræða hefur verið um mögulega kólnun fasteignamarkaðar eftir mun minni verðhækkanir en áður í júní og júlí. Litlar hækkanir áttu hins vegar einungis við um fjölbýli á þessum tíma; hækkanir á sérbýli voru áfram miklar. Tölurnar núna snúa í dálítið aðra átt og svo virðist sem töluvert líf sé í markaðnum. Spurningunni um hvort markaðurinn sé að kólna er því ekki hægt að svara með nokkurri vissu enn sem komið er.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Fasteignaverð tekur kipp eftir rólegt sumar

Þú gætir einnig haft áhuga á
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur