2.400 laus störf í ferðaþjónustu á öðrum ársfjórðungi
Fjöldi lausra starfa 8-faldaðist milli fyrsta og annars fjórðungs en laus störf voru 300 í greininni á fyrsta ársfjórðungi. Eftir að faraldurinn hófst hefur fjöldi lausra starfa legið á bilinu 0-300 og er fjöldi lausra starfa nú á öðrum fjórðungi skýr vísbending um að ferðaþjónustan sé aftur að hefja sig til flugs. Sem hlutfall af fjölda starfandi var hlutfall lausra starfa 13% á öðrum ársfjórðungi en fyrra met var á fyrsta fjórðungi í fyrra þegar hlutfallið var 5%.
Víða er farið að bera á skorti á starfsfólki í ferðaþjónustu og hafa forsvarsmenn félags hótela og gistiheimila, sem hafa verið að sækjast eftir starfsfólki, sagt að illa gangi að manna stöður. Mönnun starfa verður líklega sá þáttur sem helst mun hægja á uppganginum í ferðaþjónustu. Mikið af fjármagnsstofninum í greininni s.s. flugvélar og gististaðir er tilbúnir að taka aftur við miklum fjölda en mönnum starfa kann að leiða til hnökra þegar fjöldi ferðamanna eykst á ný.
Lesa Hagsjána í heild:
Hagsjá: 2.400 laus störf í ferðaþjónustu á öðrum ársfjórðungi