Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn 140 ára og TM 70 ára – komdu í af­mæl­is­veislu!

18. ágúst 2026

Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.

Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis stór tímamót fyrir TM sem fagnar 70 ára afmæli. Það er því sannarlega tilefni til að gera sér glaðan dag saman.

Afmælisveisla um allt land

Boðið verður upp á léttar veitingar og góða stemningu í 30 útibúum Landsbankans víðs vegar um land. Við hvetjum viðskiptavini til að líta við og fagna þessum tímamótum með okkur.

Veisluhöld verða í eftirfarandi útibúum

  • Höfuðborgarsvæðið: Reykjastræti, Borgartún, Mjódd, Grafarholt, Hamraborg og Hafnarfjörður.
  • Suðurnes og Vesturland: Reykjanesbær, Akranes og Snæfellsnes (Ólafsvík).
  • Vestfirðir og Norðurland vestra: Ísafjörður, Patreksfjörður, Hvammstangi, Blönduós og Sauðárkrókur.
  • Norðurland: Akureyri, Dalvík, Húsavík, Raufarhöfn og Þórshöfn.
  • Austurland: Vopnafjörður, Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Neskaupstaður, Djúpivogur og Hornafjörður.
  • Suðurland: Selfoss, Reykholt, Þorlákshöfn, Hvolsvöllur og Vestmannaeyjar.

Útibúin á Breiðdalsvík, Kópaskeri og Skagaströnd eru ekki opin á fimmtudögum og því verða ekki veisluhöld þar í þetta sinn.

Kíktu við í útibú nálægt þér og fagnaðu með okkur.

Við hlökkum til að sjá þig!

Þú gætir einnig haft áhuga á
13. nóv. 2026
Bláa Lónið hefur lokið hlutafjárútboði
Almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins hf. lauk kl. 16:00 þann 13. nóvember. Alls bárust tæplega 4 þúsund áskriftir að andvirði um 15,3 ma. kr.
10. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið. Þann 5. nóvember 2026 birti Bláa Lónið lýsingu sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsinu. Tekið verður við áskriftum á vef bankans frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
10. nóv. 2026
Nýr og endurbættur netbanki einstaklinga
Við höfum gefið út nýjan og endurbættan netbanka einstaklinga. Þar er enn einfaldara og þægilegra fyrir viðskiptavini að fylgjast með fjármálum sínum og sinna bankaerindum.
9. nóv. 2026
Landsbankinn og Brutto einfalda fjármál fyrirtækja
Fyrirtækjaeigendur geta nú sinnt fjármálum og haldið utan um daglegan rekstur á einum stað með Brutto, nýju rekstrarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10, í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.