Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Upp­gjör Lands­bank­ans fyr­ir fyrstu níu mán­uði árs­ins 2026

Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
29. október 2026
  • Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna.
  • Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
  • Virðisrýrnun útlána og krafna eykst frá fyrra ári og skýrist að mestu leyti af versnandi horfum í byggingariðnaði sem rekja má m.a. til hás vaxtastigs. Vanefndir aukast hjá fyrirtækjum en útlánagæði í einstaklingslánum haldast sterk.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna og hækka á milli ára. Bein áhrif verðbólgu eru áfram óvenju mikil. Hreinn vaxtamunur nemur 3,2% en væntur vaxtamunur ársins í heild er 2,9-3,1%.
  • Hreinar þjónustutekjur voru 9,2 milljarðar króna, nánast óbreyttar á milli ára.
  • Lægstu íbúðalánavextir bankans eru nú fastir vextir til fimm ára, á bilinu 8,35-9,05%, á sama tíma og meginvextir Seðlabanka Íslands eru 8,0%.
  • Afkoma af vátryggingarsamningum var 2,1 milljarður króna og eykst um 22,3% á milli ára. Samsett hlutfall TM var 91,6% í lok tímabilsins.
  • Kostnaður sem hlutfall af tekjum samstæðunnar var 30,5%, samanborið við 33,2% á sama tímabili árið 2025. Hlutfallið lækkar þar sem tekjur aukast en kostnaður helst stöðugur.
  • Reiknaður tekju- og bankaskattur var 15,5 milljarðar króna samanborið við 13,0 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Aukningin nemur 19,4%.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 25,0% en fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir heildarkröfu um að lágmarki 20,0%.
  • Á aðalfundi bankans þann 18. mars 2026 var samþykkt að greiða 18,9 milljarða króna í almenna arðgreiðslu og 16,1 milljarð króna í sérstaka arðgreiðslu. Samtals nema arðgreiðslur til hluthafa vegna reikningsársins 2025 því 34,9 milljörðum króna. Heildar arðgreiðslur bankans frá árinu 2013 nema því 245,5 milljörðum króna.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

„Afkoma Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins er góð og endurspeglar traustan og stöðugan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi. Þessi árangur skapar svigrúm til að halda áfram að bjóða viðskiptavinum einfaldar, sveigjanlegar og hagkvæmar lausnir.

Við erum ánægð með að traustur rekstur og sterk fjárhagsstaða Landsbankans endurspeglist í góðu lánshæfismati frá Moody’s Ratings, þar sem bankinn er metinn fremstur íslenskra banka í fjárhagslegum styrk. Lánshæfismatið A2 endurspeglar árangur markvissrar vinnu við að auka hagkvæmni og fjölbreytni í fjármögnun bankans. Það styrkir stöðu okkar á fjármagnsmörkuðum og skapar tækifæri til enn hagstæðari fjármögnunar sem getur skilað sér í betri kjörum fyrir viðskiptavini.

Sífellt fleiri viðskiptavinir njóta betri kjara með Vild Landsbankans og nær 4.600 einstaklingar hafa færst upp um vildarþrep á síðustu mánuðum. Það er einnig ánægjulegt að sjá aukna eftirspurn eftir tryggingaþjónustu Landsbankans, en september var söluhæsti mánuðurinn í tryggingum frá því mælingar hófust innan samstæðunnar.

Verðbólgan er enn há og hefur neikvæð áhrif á heimili, fyrirtæki og efnahagslífið í heild. Það er brýnt að ná tökum á henni svo vextir geti lækkað og skapað aukið rými til fjárfestinga og vaxtar. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans er gert ráð fyrir hægum hagvexti á næstunni en að horfur fari smám saman batnandi og verðbólga hjaðni á nýju ári.

Þótt vanskil einstaklinga séu enn lítil sjáum við skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auka fjármagnskostnað og geta gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja. Langvarandi samdráttur í uppbyggingu getur jafnframt haft áhrif á framboð íbúða þegar eftirspurn tekur við sér á ný. Þessi þróun er áhyggjuefni og undirstrikar mikilvægi þess að skapa aukinn stöðugleika í efnahagslífinu. Í uppgjöri bankans er aukið framlag í virðisrýrnunarsjóð til að mæta mögulegum vanefndum, sér í lagi í byggingariðnaði.

Mikið hefur verið fjallað um áhrif bankaskatts og það er vert að rifja upp að þegar bankaskattur var lækkaður í apríl 2020 lækkaði Landsbankinn útlánsvexti. Við höfum skilað umsögn um fyrirhugaða hækkun bankaskatts og fjöllum einnig um möguleg áhrif hans í skýrslu stjórnar. Eins og fram kemur í umsögn okkar myndi skatturinn hafa áhrif á fjármögnunarkostnað bankans og samkeppnisstöðu við aðra lánveitendur, s.s. lífeyrissjóði og erlenda banka. Kostnaðurinn af bankaskatti og vaxtalausri bindiskyldu samsvarar 0,65 prósentustigum í auknum fjármagnskostnaði fyrir hvert útlán en myndi hækka í 0,81 prósentustig ef áformin ganga eftir.

Innlán jukust umtalsvert á fjórðungnum, þótt ekki sé gert ráð fyrir að aukningin verði hluti af langtímafjármögnun bankans. Jafnframt var vöxtur í útlánum til fyrirtækja og ánægjulegt að sjá aukin viðskipti stórra fyrirtækja við Landsbankann.

Við héldum fyrsta Atvinnuvegaþing Landsbankans á haustmánuðum þar sem við beindum sjónum að tækni- og hugverkaiðnaði, sem er orðin ein mikilvægasta útflutningsgrein landsins. Íslenskt atvinnulíf býr yfir miklum krafti og hugviti og það skiptir máli að fyrirtæki hafi svigrúm til að fjárfesta, þróa nýjar lausnir og sækja fram.

Landsbankinn hefur í 140 ár stutt við framgang íslensks atvinnulífs. Atvinnuvegir hafa breyst og nýir orðið til en hlutverk bankans er enn það sama - að veita trausta fjármálaþjónustu, styðja við verðmætasköpun og vera til staðar fyrir fólk og fyrirtæki um allt land. Við náum betri árangri saman.“

Helstu atriði úr rekstri og efnahag á þriðja ársfjórðungi (3F) 2026

Rekstur:

  • Hagnaður á 3F 2026 nam 11,1 milljarði króna eftir skatta, sem er svipað og á sama tímabili árið 2025.
  • Arðsemi eiginfjár var 13,2% á 3F 2026, samanborið við 13,5% á sama tímabili 2025.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 18,4 milljarðar króna en þær námu 16,9 milljörðum króna á sama tímabili 2025.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 2,9 milljörðum króna en voru 3,0 milljarðar króna á 3F 2025. Þjónustutekjur dragast saman um 1,5% á milli tímabila.
  • Virðisrýrnun útlána og krafna nam 1,2 milljörðum króna á 3F 2026, samanborið við virðisrýrnun upp á 2,9 milljarða króna á sama tímabili árið 2025. Virðisrýrnun skýrist að mestu leyti af versnandi horfum í byggingariðnaði sem má m.a. rekja til hás vaxtastigs sem leiðir til sölutregðu íbúða.
  • Afkoma TM af vátryggingarsamningum var 570 milljónir króna á 3F 2026. Samsett hlutfall TM á tímabilinu var 94,7%.

Efnahagur:

  • Útlán jukust um 4,4% frá áramótum, eða um 82,5 milljarða króna. Útlán til einstaklinga jukust um 20,4 milljarða króna og útlán til fyrirtækja jukust um 62,1 milljarð frá áramótum. Innlán jukust um 20% frá áramótum, eða um 250 milljarða króna, mest vegna aukinna innlána í erlendri mynt frá fyrirtækjum. Innstæður á sparireikningum í appi hafa aukist um 29,5% frá áramótum.
  • Bankinn fylgist náið með og stýrir lausafjáráhættu sinni í heild, í erlendum myntum og í íslenskum krónum. Lausafjárhlutfall bankans var 356% í lok 3F 2026, samanborið við 180% í lok árs 2025.

Lykiltölur samstæðunnar

Rekstur

Fjárhæðir í milljónum króna

  9M 2026 9M 2025 Breyting Breyting% 3F 2026 3F 2025 Breyting Breyting%
Hagnaður tímabilsins 33.128 29.455 3.673 12,5% 11.054 11.133 (79) (0,7%)
Hreinar vaxtatekjur 58.271 49.369 8.902 18,0% 18.436 16.907 1.529 9,0%
Hreinar þjónustutekjur 9.161 9.184 (23) (0,3%) 2.934 2.979 (45) (1,5%)
Afkoma af vátryggingasamningum 2.136 1.747 389 22,3% 570 708 (138) (19,5%)
Aðrar rekstrartekjur 1.773 3.520 (1.747) (49,6%) 1.510 1.392 118 8,5%
Rekstrartekjur 71.341 63.820 7.521 11,8% 23.450 21.986 1.464 6,7%
Laun og launatengd gjöld (13.982) (13.034) (948) 7,3% (4.173) (3.869) (304) 7,9%
Annar rekstrarkostnaður (8.756) (8.370) (386) 4,6% (2.815) (2.533) (282) 11,1%
Rekstrargjöld (25.226) (23.432) (1.794) 7,7% (7.935) (7.060) (875) 12,4%

Efnahagur

Fjárhæðir í milljónum króna

  30.9.2026 31.12.2025 Breyting Breyting%
Heildareignir 2.584.357 2.324.939 259.418 11,2%
Útlán til viðskiptavina 1.966.849 1.884.305 82.544 4,4%
Innlán frá viðskiptavinum 1.499.328 1.249.306 250.022 20,0%
Eigið fé 341.605 343.773 (2.168) (0,6%)

Kennitölur

  9M 2026 9M 2025 3F 2026 3F 2025
Arðsemi eiginfjár eftir skatta 13,3% 12,2% 13,2% 13,5%
Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu eigna 3,2% 2,9% 2,9% 2,9%
Rekstrarkostnaður í hlutfalli af meðalstöðu eigna 1,3% 1,3% 1,1% 1,1%
Kostnaður sem hlutfall af tekjum (K/T)* 30,5% 33,2% 28,3% 28,5%
  30.9.2026 31.12.2025 31.12.2024
Eiginfjárhlutfall alls 25,0% 24,8% 24,3%
Samtals MREL fjármögnun 42,2% 40,5% 38,2%
Samtals undirskipuð MREL fjármögnun 28,2% 27,6% 25,5%
Fjármögnunarþekja erlendra mynta 198% 163% 143%
Heildarlausafjárþekja 356% 180% 164%
Lausafjárþekja erlendra mynta EUR 672% 1386% 951%
Vandræðalán 1,4% 0,8% 1,1%
Meðalstöðugildi 940 917 811
Stöðugildi í lok tímabils 943 930 822

*K/T = Rekstrargjöld alls/(Hreinar rekstrartekjur – virðisbreytingar útlána).

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
23. júlí 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrri helming ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2026 nam 22,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 18,3 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 11 milljarðar króna.
Austurbakki
30. apríl 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 nam 11,2 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 7,9 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eiginfjár var 13,5% samanborið við 10,0% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
29. jan. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2025
Hagnaður Landsbankans á árinu 2025 nam 38,0 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 37,5 milljarða króna árið áður.