Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans

Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
Ella býr yfir 25 ára reynslu af mannauðsmálum, rekstri og breytingastjórnun. Hún starfar í dag sem mannauðsstjóri rekstrarsviðsins Meat & Prepared Foods hjá JBT Marel, með ábyrgð á mannauðsmálum í Evrópu og Norður-Ameríku. Áður starfaði hún meðal annars sem mannauðsstjóri hjá Marel, þar sem hún tók þátt í uppbyggingu rekstrareiningarinnar Retail and Food Service Solutions. Hún hefur gegnt mannauðsstjórnunarstörfum hjá deCODE genetics og Hörpu og var framkvæmdastjóri mannauðs og innri þjónustu hjá Opnum kerfum.
Ella er með MBA-gráðu, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og BSc-gráðu í viðskipta- og alþjóðamarkaðsfræði. Hún hefur jafnframt lokið diplómanámi í markþjálfun og viðurkenndum stjórnarháttum. Ella hefur setið í ýmsum stjórnum og ráðum í gegnum tíðina og situr nú í stjórn Marel ehf. og fulltrúaráði Birtu lífeyrissjóðs.





