Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Fjöl­menni og líf­leg­ar um­ræð­ur á hagspár­fundi

28. október 2026

Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.

Á fundinum var farið yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum, auk þess sem gestir fengu áhugaverða innsýn í starfsemi og framtíðaráform Alvotech. Fundinum lauk með líflegum pallborðsumræðum.

Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, hóf fundinn og kynnti helstu niðurstöður hagspárinnar. Greiningardeild spáir hóflegum hagvexti í ár og á næsta ári, en gerir ráð fyrir að horfur fari smám saman batnandi. Verðbólga hefur haldið vöxtum háum og hægt á hagkerfinu, en hana má meðal annars rekja til stríðsátaka erlendis og gjaldahækkana hér heima. Atvinnuleysi hefur jafnframt aukist og skýr merki eru um að hægt hafi á vinnumarkaði.

Því næst tók Lisa Graver, forstjóri Alvotech, til máls og flutti fróðlegt erindi um sögu og uppbyggingu fyrirtækisins, vöxt þess og þau tækifæri sem eru fram undan.

Í lok fundarins fóru svo fram líflegar pallborðsumræður um stöðu efnahagsmála og horfurnar næstu misseri. Þátttakendur voru Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Árni Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs Landsbankans, Guðný Erla Guðnadóttir, forstöðumaður hjá Landsbréfum, og Lárus Welding, fjármálastjóri Stoða. Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í Greiningardeild Landsbankans, stýrði umræðunum.

Við þökkum öllum sem mættu fyrir komuna, áhugaverðar umræður og góðan fund!

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.