Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Al­mennt hluta­fjárút­boð Bláa Lóns­ins hf.

Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
6. nóvember 2026

Bláa Lónið hf. er íslenskt hlutafélag sem sinnir rekstri, þróun og markaðssetningu á heilsu- og vellíðunarþjónustu. Félagið sérhæfir sig í rekstri áfangastaða á heimsmælikvarða sem byggja á hönnun, gæðum, einstökum eiginleikum íslenskrar náttúru og áratuga reynslu. Þar á meðal er Bláa Lónið, eitt þekktasta baðlón heimsins, the Retreat, Silica Hotel og Highland Base Kerlingarfjöll, baðlón Fontana við Laugarvatn og Blue Lagoon Skin Science, alþjóðlegt húðvörumerki sem byggir á áratuga rannsóknum og einstökum innihaldsefnum úr jarðsjó Bláa Lónsins. Bláa Lónið hf. hefur einnig gert samning um kaup á öllu hlutafé í Arctic Adventures hf., sem er leiðandi upplifunar- og ævintýraferðaþjónustufyrirtæki. Allir fyrirvarar vegna kaupanna hafa verið uppfylltir og verður félagið því hluti af samstæðunni fyrir lok nóvember. Bláa Lónið hf. vinnur einnig að umfangsmikilli uppbyggingu í Þjórsárdal, þar sem Fjallaböðin, Mountain Retreat og Gestastofa munu rísa, auk þróunar nýs baðlóns og hótels á Hoffelli. Bláa Lónið hf. á jafnframt hluti í völdum áfangastöðum víða um land: Jarðböðunum við Mývatn, Vök á Egilsstöðum og Sjóböðunum á Húsavík.

Helstu skilmálar útboðsins

  • Tekið verður við áskriftum á vef Landsbankans, frá kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera frá 100.000 kr. til 20.000.000 kr. í áskriftarbók A og yfir 20.000.000 kr. í áskriftarbók B.
  • Fjárfestar geta breytt eða afturkallað áskrift sína á útboðstímabilinu.
  • Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar eigi síðar en 16. nóvember 2026.
  • Gjalddagi og eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins er 18. nóvember 2026.
  • Áætlað er að hlutabréf félagsins verði afhent kaupendum eigi síðar en 20. nóvember 2026.
  • Áætlað er að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 20. nóvember 2026.
Áskriftarbók A Áskriftarbók B
Stærð áskrifta Áskriftir frá 100.000 kr. – 20.000.000 kr. Áskriftir yfir 20.000.000 kr.
Útboðsgengi Fast verð 95 kr. á hlut. Tilboð skulu gerð á eða yfir lágmarksverði 95 kr. á hlut. Salan fer fram á föstu verði, sem ákvarðast jafnt og það lægsta af samþykktum tilboðum.
Stærð útboðs Til sölu verða 45.000.000 hlutir (30% af stærð útboðsins). Til sölu verða 105.000.000 hlutir (70% af stærð útboðsins).
Úthlutun vegna umframeftirspurnar Áskriftir í áskriftarbók A verða skertar hlutfallslega, þó þannig að leitast verður við að skerða ekki áskriftir undir 1.000.000 kr. og flötum niðurskurði beitt á hæstu áskriftir ef það dugar ekki til. Áskriftir starfsmanna Bláa Lónsins í útboðinu verða ekki skertar undir 5.000.000 kr. Áskriftir sem eru á eða yfir útboðsgengi áskriftarbókar B verða samþykktar, þó þannig að ef umframeftirspurn verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir skertar. Við skerðingu í áskriftarbók B verða áskriftir metnar á grundvelli verðs. Þannig verður leitast við að skerða ekki áskriftir sem eru yfir útboðsgengi áskriftarbókar B en þær áskriftir sem eru á útboðsgengi áskriftarbókar B verða skertar hlutfallslega með tilliti til fjárhæðar áskrifta á því gengi. Öll samþykkt tilboð verða samþykkt á sama gengi: Útboðsgengi áskriftarbókar B.

Bláa Lónið hf. býður til opins kynningarfundar í tengslum við almennt hlutafjárútboð félagsins. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 10. nóvember í Hörpu. Beint vefstreymi verður aðgengilegt á vefsíðu Landsbankans og á vefsíðu Bláa Lónsins.

Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. hafa umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Bláa Lónið hf., hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins, sem dagsett er 5. nóvember 2026, og fjárfestakynningu. Lýsinguna og fjárfestakynninguna má finna á landsbankinn.is/blaalonid.

Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingarbanki, umsjónaraðilar útboðsins, veita upplýsingar og tæknilega aðstoð.

Áskriftarbók A

Verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Landsbankans hf.:
Sími: 410-4040
Netfang: bl@landsbankinn.is

Áskriftarbók B

Landsbankinn hf.
Sími: 410-4040
Netfang: bl@landsbankinn.is

Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 522-4000
Netfang: bl@fossar.is

Vakin er athygli á því að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu. Frekari upplýsingar um áhættuþætti vegna starfsemi og hlutabréfa Bláa Lónsins hf. eru í lýsingu félagsins sem staðfest hefur verið af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Staðfestingu fjármálaeftirlitsins ber ekki að skilja sem stuðning við útgefandann eða þau verðbréf sem boðin eru eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.