Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf

Á fundinum fjölluðu Björn Berg, fjármálaráðgjafi, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, m.a. um fjárfestingar, þróun íslenska hlutabréfamarkaðarins og praktísku atriðin þegar kemur að fjárfestingum.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, fór svo yfir sterka stöðu félagsins. Bláa Lónið er leiðandi á íslenskum upplifunar- og vellíðunarmarkaði og með skýra sýn og áætlun um aukna verðmætasköpun. Þá fjallaði hún um spennandi uppbyggingu félagsins m.a. í Þjórsárdal og Hoffelli. Stefnt er að skráningu félagsins á markað í nóvember.
Fundurinn var vel heppnaður og líflegar umræður sköpuðust meðal gesta.
Við þökkum öllum fyrir komuna og ánægjulega samveru!













