Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.

Hlutafjárútboð
Bláa Lónsins hf.

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. stóð yfir frá kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember til kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.

Lykildagsetningar

Áskriftartímabil
10. – 13. nóvember 2026
Áætlaður tilkynningardagur um niðurstöður
Eigi síðar en 16. nóvember 2026
Eindagi greiðslu
18. nóvember 2026
Áætluð afhending og fyrsti viðskiptadagur eigi síðar en
20. nóvember 2026

Nánari upplýsingar

Áskriftarleiðir

Áskriftarbók A Áskriftarbók B
Stærð áskrifta Áskriftir frá 100.000 kr. – 20.000.000 kr. Áskriftir yfir 20.000.000 kr.
Útboðsgengi Fast verð 95 kr. á hlut. Tilboð skulu gerð á eða yfir lágmarksverði 95 kr. á hlut. Salan fer fram á föstu verði, sem ákvarðast jafnt og það lægsta af samþykktum tilboðum.
Stærð útboðs Til sölu verða 45.000.000 hlutir (30% af stærð útboðsins). Til sölu verða 105.000.000 hlutir (70% af stærð útboðsins).
Úthlutun vegna umframeftirspurnar Áskriftir í áskriftarbók A verða skertar hlutfallslega, þó þannig að leitast verður við að skerða ekki áskriftir undir 1.000.000 kr. og flötum niðurskurði beitt á hæstu áskriftir ef það dugar ekki til. Áskriftir starfsmanna Bláa Lónsins í útboðinu verða ekki skertar undir 5.000.000 kr. Áskriftir sem eru á eða yfir útboðsgengi áskriftarbókar B verða samþykktar, þó þannig að ef umframeftirspurn verður í þessum hluta útboðsins verða áskriftir skertar. Við skerðingu í áskriftarbók B verða áskriftir metnar á grundvelli verðs. Þannig verður leitast við að skerða ekki áskriftir sem eru yfir útboðsgengi áskriftarbókar B en þær áskriftir sem eru á útboðsgengi áskriftarbókar B verða skertar hlutfallslega með tilliti til fjárhæðar áskrifta á því gengi. Öll samþykkt tilboð verða samþykkt á sama gengi: Útboðsgengi áskriftarbókar B.

Um útboðið

  • Til sölu verða 150.000.000 hlutir, eða sem samsvara 14,6% af útgefnu hlutafé Bláa Lónsins hf. („Bláa Lónið“ eða „félagið“).
  • Útboðið hefst kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 og lýkur kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
  • Tekið verður við áskriftum rafrænt á áskriftarvef útboðsins.
  • Í boði eru tvær áskriftarbækur sem eru ólíkar er varðar stærð áskrifta og úthlutun.
  • Áskriftarbók A fyrir áskriftir frá 100 þ.kr. til 20 m.kr. og áskriftarbók B fyrir áskriftir yfir 20 m.kr.
  • Í áskriftarbók A verða boðnir til sölu 45.000.000 hlutir (30% af stærð útboðsins) og í áskriftarbók B verða 105.000.000 hlutir (70% af stærð útboðsins) boðnir til sölu. Heimild er fyrir félagið til að færa hluti milli áskriftarbókar A og B.
  • Verð á hlut í útboðinu er 95 kr. í áskriftarbók A en í áskriftarbók B er lágmarkstilboð 95 kr. fyrir hvern hlut.
  • Landsbankinn hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. eru umsjónar- og söluaðilar útboðsins.
  • Landsbankinn hefur umsjón með töku hluta Bláa Lónsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfar útboðs.
  • Áætlað er að niðurstöður útboðsins verði tilkynntar eigi síðar en mánudaginn 16. nóvember 2026.
  • Félagið áskilur sér einhliða rétt til að ákvarða úthlutun í útboðinu.
  • Gjalddagi og eindagi fjárfesta á áskriftarloforðum er áætlaður miðvikudaginn 18. nóvember 2026.
  • Afhendingardagur hluta er áætlaður eigi síðar en föstudaginn 20. nóvember 2026.
  • Fyrsti viðskiptadagur á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. er áætlaður föstudaginn 20. nóvember 2026.
  • Ef þú átt ekki vörslureikning getur þú stofnað hann með því að skrá þig í verðbréfaviðskipti í appinu eða netbankanum.
  • Lögaðilar sem taka þátt í útboðinu eru skyldugir til þess að vera með LEI-kóða.
  • Áskriftarsíðuna verður hægt að nálgast í gegnum þessa vefsíðu á áskriftartímabilinu.

Frekari upplýsingar um útboðið

Fjárfestum er heimilt að breyta áskrift sem þeir hafa þegar lagt fram í útboðinu á áskriftartímabilinu með því að leggja fram annað tilboð eða fella niður tilboð sem þegar hefur verið lagt fram. Allar áskriftir sem hafa ekki verið felldar niður á áskriftartímabilinu eru skuldbindandi fyrir viðkomandi fjárfesti í lok áskriftartímabilsins. Félagið áskilur sér rétt til að innheimta áskriftir til samræmis við fyrirmæli laga, eða úthluta hlutabréfum áskrifanda sem ekki greiðir á gjalddaga til annarra fjárfesta, án frekari fyrirvara eða viðvörunar og með vöxtum og kostnaði. Félagið áskilur sér einnig rétt til að fella niður áskriftir sem ógreiddar eru við lok gjalddaga áskrifta og endurúthluta þeim hlutum sem áskriftirnar varða til annarra hluthafa.

Umsjónaraðilar útboðsins áskilja sér rétt til að krefjast staðfestingar á greiðslugetu eða tryggingar fyrir greiðslu áskrifta frá áskrifendum. Verði áskrifandi ekki við þessari kröfu umsjónaraðila innan þess frests sem gefinn er, áskilur félagið sér rétt til að ógilda áskrift viðkomandi áskrifanda að hluta eða í heild. Félagið metur einhliða hvort staðfesting á greiðslugetu eða trygging teljist fullnægjandi. Lögaðilar sem taka þátt í útboðinu eru skyldugir til þess að vera með LEI-kóða (e. legal entity identifier). Liggi gildur LEI-kóði ekki fyrir við lok áskriftartímabils mun áskrift vera felld niður. Félagið og umsjónaraðilar áskilja sér rétt til að hafna áskriftum, án fyrirvara eða aðvörunar.

Útboðið er eingöngu markaðssett á Íslandi og verða hinir seldu hlutir ekki markaðssettir eða boðnir til kaups utan Íslands með þeim hætti að um almennt útboð í öðrum lögsögum sé að ræða. Þátttaka í útboðinu er heimil öllum þeim einstaklingum sem hafa íslenska kennitölu og eru fjárráða í skilningi lögræðislaga nr. 71/1997, sem og þeim lögaðilum sem hafa íslenska kennitölu og eru ekki ógjaldfærir í skilningi laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti, með þeim takmörkunum sem af lögum kunna að leiða.

Fjárfestar sem ekki hafa íslenska kennitölu geta sent inn tilboð í áskriftarbók B í gegnum umsjónaraðila útboðsins. Umsjónaraðilar áskila sér rétt til að krefjast fullnægjandi staðfestingar á gildi tilboða.

Félagið áskilur sér rétt til að falla frá útboðinu ef Nasdaq Iceland hf. hafnar umsókn Bláa Lónsins um töku til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, ef áskrift er ekki móttekin fyrir alla hluti sem boðnir eru til sölu í útboðinu, eða af einhverjum öðrum ástæðum sem félagið telur gefa tilefni til. Í slíkum tilvikum verða áskriftir og úthlutanir þá gerðar ógildar. Nasdaq Iceland hf. mun tilkynna opinberlega um fyrsta dag viðskipta með hlutabréf í Bláa Lóninu á Aðalmarkaði, en áætlað er að hann verði þann 20. nóvember 2026.

Áréttað er fyrir fjárfestum að hlutabréf eru áhættusöm fjárfesting sem getur byggst á væntingum en ekki loforðum. Áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Bláa Lóninu skulu fjárfestar kynna sér áhættuþætti Bláa Lónsins, skilmála útboðsins og aðrar upplýsingar um Bláa Lónið, sem finna má í lýsingu Bláa Lónsins, sem dagsett er 5. nóvember 2026, auk annarra gagna, fyrirvara og upplýsinga sem birt eru í tengslum við útboðið og fyrirhugaða skráningu á Nasdaq Iceland.

Hlutafjárútboði Bláa Lónsins er lokið

Hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. stóð yfir frá kl. 10.00 þriðjudaginn 10. nóvember til kl. 16.00 föstudaginn 13. nóvember 2026.