Flokkun viðskiptavina í Vild byggir á lögmætum hagsmunum bankans, sbr. lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lögmætir hagsmunir bankans felast í því að geta flokkað viðskiptavini á sjálfvirkan hátt til að bjóða þeim sérsniðna þjónustu og vildarkjör í samræmi við umsvif og viðskiptasögu þeirra hjá bankanum.
Þar sem vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum átt þú rétt á að andmæla henni á grundvelli þinna sérstöku aðstæðna. Ef þú vilt ekki að upplýsingar þínar séu notaðar til að flokka þig í Vild getur þú haft samband við með því að senda okkur tölvupóst á landsbankinn@landsbankinn.is, hafa samband við okkur í netspjallinu í síma 410 4000.
Við munum þá taka andmæli þín til skoðunar og hætta vinnslunni eins fljótt og auðið er, nema sýnt verði fram á brýna lögmæta hagsmuni bankans sem vega þyngra en hagsmunir þínir.