Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum inn- og útlána föstudaginn 10. nóvember.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Innlánavextir
- Vextir verðtryggðra Landsbóka hækka um 0,40-0,50 prósentustig.
- Vextir verðtryggðs Framtíðargrunns, Fasteignagrunns og Lífeyrisbókar hækka um 0,50 prósentustig.
Útlánavextir
- Breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,35 prósentustig og verða 3,50%.
- Fastir vextir nýrra verðtryggðra íbúðalána til 60 mánaða hækka um 0,50 prósentustig.
- Kjörvextir á verðtryggðum lánum hækka um 0,50 prósentustig.
- Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána til 36 og 60 mánaða hækka um 0,20 prósentustig.
Ný vaxtatafla tekur gildi föstudaginn 10. nóvember 2023. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.
Hver eru áhrifin á lánið mitt?
Við vekjum athygli á fræðslugrein á vef bankans þar sem fjallað er um áhrif vaxtahækkana á lán. Ef lán (neytendalán eða fasteignalán til neytenda) er með breytilega vexti taka breytingarnar gildi 30 dögum eftir að tilkynnt er um breytinguna. Vextir lána með fasta vexti breytast ekki á meðan á fastvaxtatímanum stendur.