Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Aft­ur opið fyr­ir um­sókn­ir um sér­eign­ar­sparn­að inn á hús­næð­is­lán

Hús í Reykjavík
13. október 2026

Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.

Samkvæmt nýjum reglum er hægt að nýta úrræðið í samanlagt allt að tíu ár, eða sem nemur 120 mánuði. Fyrri nýting skattfrjálsra úrræða vegna húsnæðis telst með í því tímabili. Þegar þú skráir þig inn á þjónustuvefinn sérðu hversu marga mánuði þú átt eftir. 

Hverjir geta sótt um?

Til að nýta úrræðið þarft þú að eiga að minnsta kosti 30% hlut í húsnæðinu, vera með lögheimili þar og vera með lán sem er tryggt með veði í eigninni. Úrræðið er því ekki bundið við fyrstu íbúðarkaup. Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort fyrir sig.

Hámarksfjárhæð á einstakling er 500.000 kr. á árinu 2026 miðað við tólf mánaða ráðstöfun. Þar af getur eigið framlag verið allt að 333.000 kr. og mótframlag launagreiðanda allt að 167.000 kr. Hámarksfjárhæðir taka framvegis breytingum árlega í samræmi við vísitölu neysluverðs.

Sæktu um fyrir 1. desember vegna iðgjalda frá áramótum

Hægt er að ráðstafa iðgjöldum afturvirkt frá árslokum 2025. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 geta gilt um iðgjöld frá 1. janúar 2026. Að öðru leyti gilda umsóknir um iðgjöld sem greidd eru eftir að umsókn berst.

Á Ísland.is má finna nánari upplýsingar um skilyrði úrræðisins, svör við algengum spurningum og hlekk á umsóknina.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
31. okt. 2026
Færslur á debetkort tvíbókaðar
Vegna villu eru dæmi um að debetkortafærslur hafi verið tvíbókaðar á reikninga viðskiptavina.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.