Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lög­regl­an var­ar við föls­uð­um skil­ríkj­um ung­menna

14. október 2026

Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.

Þessi VPN-stilling lætur notandann virðast á öðrum aldri en hann er með því að treysta öryggisskírteini frá rekstraraðila þjónustunnar og beina netumferð símans í gegnum netþjóna hennar. Þjónustan breytir svo kennitölu ungmennisins sem birtist í netbanka og á island.is.  

VPN-stillinguna var hægt að kaupa á netinu á bilinu 8. júlí til og með 8. október. Hún er ekki lengur fáanleg.  

Ungmennin hafa þurft að slá inn raunverulega kennitölu sína og greiða fyrir þjónustuna á netinu í gegnum greiðslumiðlunina Stripe. Rekstraraðili þjónustunnar hefur því undir höndum raunverulega kennitölu þeirra, fullt nafn, netfang og í nokkrum tilfellum ljósmynd og aldur. Enn fremur er ljóst að þar sem sími ungmennanna treystir nú hinu falsaða skilríki gagnvart öllum vefsíðum getur rekstraraðilinn einnig skoðað umferð tengda tölvupósti, samfélagsmiðlum og öðrum skilaboðum án þess að þau verði þess vör. 

Landsbankinn hvetur foreldra og forráðamenn ungmenna til að kanna málið sérstaklega. Ef VPN-stillingin finnst í síma ungmennis er brýnt að bregðast við með eftirfarandi hætti: 

  1. Athugið hvort VPN-stillingin (e. VPN profile) sé uppsett
    Settings → General → VPN & Device Management.  
    Leitið að stillingu sem heitir „Island Surge VPN“. 
  2. Athugið hvort stillingin sé virk  
    Settings → General → About → Certificate Trust Settings. Ef þar birtist skilríki sem heitir „Surge“ og kveikt er á því, er VPN-stillingin virk.
  3. Fjarlægið stillinguna
    Í VPN & Device Management þarf að velja stillinguna og síðan Remove Profile. Þá hverfur skírteinið og VPN-tengingin líka.
  4. Fylgist með og hafið samband 
    Ef VPN-stilling fannst á símtækinu og eitthvað óeðlilegt kemur upp í tengslum við færslur á reikningum eða greiðslukortum skal strax hafa samband við bankann í síma 410-4000. Athugið að aðgerðir í netbanka og greiðslur á greiðslukortum eru háðar auðkenningu með rafrænum skilríkjum eða persónubundnum auðkenningum. Mikilvægt er að samþykkja ekki auðkenningu sem tengist ekki eigin framkvæmd.

Við hvetjum ykkur til að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 ef þið hafið frekari upplýsingar um málið.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.