Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn ráð­gjafi Styr­kás við kaup á Mal­bik­stöð­inni

Landsbankinn í Reykjastræti
2. október 2026

Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.

Kaupin eru liður í uppbyggingu Styrkás sem þjónustufélags fyrir innviði og atvinnuvegi. Styrkás hefur jafnframt hafið undirbúning að skráningu hlutabréfa félagsins á aðallista Nasdaq Iceland og ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankann sem umsjónaraðila skráningarinnar. Markmiðið er að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027.

Malbikstöðin var stofnuð árið 2004 og sérhæfir sig í framleiðslu og útlögn malbiks. Félagið verður rekið áfram sem sjálfstætt félag innan Styrkás og myndar fimmta kjarnasvið samstæðunnar.

Seljandi Malbikstöðvarinnar, félag í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar, mun eftir viðskiptin eiga 10,2% hlut í Styrkás.

Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, meðal annars samþykki Samkeppniseftirlitsins. Auk Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans voru BBA // Fjeldco, Fontes Ráðgjöf og KPMG ráðgjafar kaupanda.

Malbiksstöðin
Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.