Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Ís­land.is aldrei not­að við inn­skrán­ingu í app­ið eða net­bank­ann

Netöryggi
18. október 2023

Við vörum við svikaskilaboðum sem eru send í nafni Ísland.is í þeim tilgangi að komast yfir persónuupplýsingar. Ísland.is er aldrei notað til innskráningar í app eða netbanka Landsbankans.

Ísland.is hefur varað við netsvikum sem snúast um að biðja fólk um að nota rafrænu skilríkin sín til að skrá sig inn í heimabanka. Enginn banki notar Ísland.is fyrir slíka innskráningu.

Við í Landsbankanum sendum aldrei skilaboð með hlekk yfir á innskráningarsíðu netbanka eða appsins. Ef þú færð skilaboð sem innihalda hlekk yfir á innskráningarsíðu apps eða netbanka er um svik að ræða.

Við ítrekum einnig að mikilvægt er að skoða vel hvaðan skilaboð berast (úr hvaða síma/netfangi) og samþykkja alls ekki innskráningu með rafrænum skilríkjum í hugsunarleysi heldur aðeins ef þú ert viss um að ætla að nota þau í raun og veru.

Myndefnið er frá Cert.is.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netsvik
29. jan. 2026
Vörum við svikapóstum í nafni bankans
Að gefnu tilefni vill Landsbankinn vara við svikapóstum sem eru í umferð og herma nafn og útlit bankans. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að viðtakandi þurfi að smella á hlekk í póstinum til að staðfesta millifærslu.
Netbanki fyrirtækja
16. jan. 2026
Breyting á fjárhæðum í millibankakerfi Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að breyta fjárhæðamörkum í millibankakerfi sínu.
16. jan. 2026
Orden vann í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans
Teymið Orden bar sigur úr býtum í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans og hlaut að launum 150.000 krónur í verðlaunafé og sæti í 10 liða lokakeppni Gulleggsins.
Dagatal Landsbankans 2025
14. jan. 2026
Sýning á dagatalsmyndunum opnar 20. janúar
Þorvaldur Jónsson listmálari gerði myndirnar sem prýða dagatal Landsbankans 2026. Þorvaldur mun opna sýningu á myndunum í Landsbankanum Reykjastræti 6 þriðjudaginn 20. janúar klukkan 15.00. Sýningin verður opin á afgreiðslutíma bankans og mun standa fram á vor.
14. jan. 2026
TM er komið í samstarf við Aukakrónur!
Það gleður okkur að segja frá því að nú er TM samstarfsaðili Aukakróna. Allir sem eru með tryggingarnar sínar hjá TM fá 1% endurgreiðslu í formi Aukakróna þegar greitt er með korti tengdu við Aukakrónukerfið. Svo er líka hægt að borga fyrir tryggingarnar sínar með Aukakrónum.
7. jan. 2026
Landsbankinn hefur samstarf við Drift EA
Landsbankinn og Drift EA hafa gert samstarfssamning sem miðar að því að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf á Íslandi með því að styrkja umgjörð, ráðgjöf og tengslanet fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK og Hjalti Harðarson, forstöðumaður markaðsmála hjá Landsbankanum
5. jan. 2026
Landsbankinn áfram aðalbakhjarl Gulleggsins
KLAK – Icelandic Startups og Landsbankinn hafa endurnýjað samstarf sitt um frumkvöðlakeppnina Gulleggið með undirritun nýs þriggja ára samnings. Með samningnum treystir Landsbankinn hlutverk sitt sem aðalbak­hjarl keppninnar enn frekar og undirstrikar langvarandi stuðning sinn við íslenska nýsköpun.
Jólakveðja
19. des. 2025
Afgreiðslutími Landsbankans um jól og áramót
Þjónustuver og útibú Landsbankans verða lokuð á aðfangadag, jóladag, annan í jólum og á nýársdag. Á gamlársdag verða útibú lokuð en Þjónustuverið verður opið á milli kl. 9-12.
Fjölskylda
19. des. 2025
Click to Pay: Ný og öruggari leið til að greiða á netinu
Nú geta viðskiptavinir Landsbankans tengt greiðslukortin sín við Click to Pay, nýja og öruggari greiðslulausn sem netverslanir eru óðum að taka í notkun.
Samfélagsstyrkir 2025
11. des. 2025
Samfélagssjóður Landsbankans styrkir 32 verkefni
Samfélagsstyrkjum samtals að upphæð 20 milljónum króna var úthlutað úr Samfélagssjóði Landsbankans mánudaginn 8. desember 2025. Alls hlutu 32 verkefni styrk að þessu sinni. Verkefnin eru afar fjölbreytt og gagnast fólki á öllum aldri og víða um land.