Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir leið­ir nýja deild Upp­lýs­inga­miðl­un­ar 

18. febrúar 2026

Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði Samskipta og menningar sem tekur til starfa í lok febrúar. Undir deildina falla samskiptateymi og Greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.

Markmið nýrrar deildar er að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans, bæði inn á við og út á við. Upplýsingamiðlun mun bera ábyrgð á samskiptum, almannatengslum, miðlun greininga og ytri fræðslu og styðja þannig við samræmda og skýra rödd Landsbankans í samfélagsumræðu. Á sviði Samskipta og menningar eru fyrir mannauðsmál, markaðsmál og rekstur fasteigna bankans.

Kristín hefur víðtæka reynslu af samskiptum á breiðum grunni. Hún hefur starfað á mörkum fyrirtækja og fjölmiðla og unnið náið með stjórnendum að mótun orðræðu og stefnumiðaðra samskipta. Undanfarin ár var hún markaðs- og samskiptastjóri hjá EFLU þar sem hún bar ábyrgð á innri og ytri samskiptum, leiddi teymi og sinnti stefnumótun, fjölmiðlasamskiptum og ritstjórnarlegri ábyrgð á ársskýrslu. Kristín hefur jafnframt starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta, ímyndarmála og opinberrar umræðu, auk þess að vera meðstjórnandi hlaðvarpsins Komið gott og álitsgjafi í fjölmiðlum.

Kristín er með MA-gráðu í hönnun og sjónrænum samskiptum frá Universität der Künste í Berlín og stundar nú nám til MA-gráðu í Digital Innovation and Strategic Leadership við Hyper Island Stokkhólms/Teesside háskólann.

Við bjóðum Kristínu hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til samstarfsins!

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.