Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn bak­hjarl Lista­há­tíð­ar í Reykja­vík

26. febrúar 2026

Landsbankinn og Listahátíð í Reykjavík hafa skrifað undir samstarfssamning þess efnis að bankinn verði bakhjarl hátíðarinnar til ársins 2028.

Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, skrifuðu undir samkomulagið.

„Samstarfið við Landsbankann er okkur afar mikilvægt. Það er ánægjulegt að vinna með öflugum bakhjarli sem hefur verið til fyrirmyndar þegar kemur að stuðningi við menningarlífið í landinu. Stuðningurinn veitir okkur tækifæri til þess að efla Listahátíð enn frekar og bjóða landsmönnum öllum og erlendum gestum upp á framúrskarandi og fjölbreytta dagskrá. Við vinnum að því að Listahátíð nái til sem flestra og höfum lagt okkur eftir því að sníða dagskrána þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi,“ segir Lára Sóley.

„Við erum afar spennt fyrir að taka þátt í þessu flotta verkefni og hlökkum til að mæta á viðburðina. Landsbankinn hefur verið öflugur stuðningsaðili menningar og lista í gegnum árin. Nú nýlega höfum við lagt HönnunarMars lið, boðið upp á listaverkagöngur á Menningarnótt og stutt ýmsa minni menningarviðburði víðs vegar um landið, bæði með styrkjum og beinni þátttöku. Þá er listaverkavefur bankans framtak sem miðar að því að sem flestir fái að njóta listmuna í eigu bankans. Hús Landsbankans við Reykjastræti 6 er í menningarhjarta borgarinnar og það er okkur afar mikilvægt að taka virkan þátt, auk þess sem við njótum þess að hrífast með,“ segir Sara.

Listahátíð í Reykjavík 2026 fer fram dagana 30. maí til 14. júní. Viðburðir verða víða í borginni og á ýmsum stöðum á landsbyggðinni. Heildardagskrá hátíðarinnar verður kynnt á sérstökum viðburði í Iðnó, fimmtudaginn 26. mars. Hátíðarlistamaður Listahátíðar 2026 er Hildur Guðnadóttir og verða fjórir viðburðir tengdir henni á dagskrá. Meðal annarra viðburða sem tilkynnt hefur verið um eru tónleikar sópransöngkonunnar Angel Blue, sýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merrys í Listasafni Íslands, tónleikar John Grants, sýning Zimouns í Listasafninu á Akureyri og flutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á 8. sinfóníu Mahlers.

Þú gætir einnig haft áhuga á
10. mars 2026
Þú færð tryggingarnar hjá Landsbankanum  
Landsbankinn, í samstarfi við TM, býður nú upp á tryggingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Viðskiptavinum bankans bjóðast betri kjör og fyrsta flokks tryggingaþjónusta.
27. feb. 2026
EM-herferð Landsbankans með þrjár tilnefningar
Landsbankinn hlaut þrjár tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2025. Lúðurinn er haldinn af ÍMARK, samtökum markaðsfólks, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Þetta er í 40. sinn sem Lúðurinn er afhentur á Íslandi.
Stúlka með síma
27. feb. 2026
10 milljónir í námsstyrki
Landsbankinn hefur opnað fyrir umsóknir um námsstyrki fyrir árið 2026. Bankinn hefur stutt efnilegt námsfólk með styrkjum um 36 ára bil og í ár var ákveðið að hækka heildarupphæð námsstyrkjanna um tvær milljónir. Heildarupphæð námsstyrkja í ár er því 10 milljónir.
18. feb. 2026
Kristín Gunnarsdóttir leiðir nýja deild Upplýsingamiðlunar 
Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði Samskipta og menningar sem tekur til starfa í lok febrúar. Undir deildina falla samskiptateymi og Greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.
Svanni
18. feb. 2026
Frestur til að sækja um lánatryggingu úr Svanna
Landsbankinn hefur endurnýjað samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, til fjögurra ára. Nýr samningur gildir út september 2029.
Austurbakki
5. feb. 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi við kaup Styrkás á Gallon
Styrkás hf. hefur í gegnum dótturfélag sitt Skeljung ehf. undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf. Seljandi er Skel fjárfestingafélag hf.
Netsvik
29. jan. 2026
Vörum við svikapóstum í nafni bankans
Að gefnu tilefni vill Landsbankinn vara við svikapóstum sem eru í umferð og herma nafn og útlit bankans. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að viðtakandi þurfi að smella á hlekk í póstinum til að staðfesta millifærslu.
Netbanki fyrirtækja
16. jan. 2026
Breyting á fjárhæðum í millibankakerfi Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að breyta fjárhæðamörkum í millibankakerfi sínu.
16. jan. 2026
Orden vann í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans
Teymið Orden bar sigur úr býtum í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans og hlaut að launum 150.000 krónur í verðlaunafé og sæti í 10 liða lokakeppni Gulleggsins.
Dagatal Landsbankans 2025
14. jan. 2026
Sýning á dagatalsmyndunum opnar 20. janúar
Þorvaldur Jónsson listmálari gerði myndirnar sem prýða dagatal Landsbankans 2026. Þorvaldur mun opna sýningu á myndunum í Landsbankanum Reykjastræti 6 þriðjudaginn 20. janúar klukkan 15.00. Sýningin verður opin á afgreiðslutíma bankans og mun standa fram á vor.