EM-herferð Landsbankans með þrjár tilnefningar

Landsbankinn hlaut þrjár tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2025. Lúðurinn er haldinn af ÍMARK, samtökum markaðsfólks, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Þetta er í 40. sinn sem Lúðurinn er afhentur á Íslandi.
EM-herferð bankans, „Skrifum söguna saman“, sem var unnin af vörumerkjastofunni Tvist, hlaut tilnefningar í eftirfarandi flokkum:
- Herferð
- Kvikmyndaðar auglýsingar – lengri
- Viðburðir
Á vef Landsbankans var útbúið sérstakt viðmót þar sem almenningi gafst kostur á að gefa landsliðinu rafræna eiginhandaráritun. Áritanirnar birtust síðan í vefauglýsingum, á samfélagsmiðlum og á umhverfisskiltum víða um land. Þá voru stórir dúkar settir upp á fjölmennum íþróttaviðburðum þar sem gestir gátu ritað nafn sitt. Þessi táknræni stuðningur fylgdi stelpunum okkar út á lokamótið í Sviss.
Kvikmyndaðar auglýsingar – lengri
Viðburðir
Hjalti Harðarson, forstöðumaður markaðsmála Landsbankans, segir: „Okkur í Landsbankanum þykir afar mikilvægt að styðja við íslenska knattspyrnu og því er mikill heiður að fá tilnefningar fyrir þessa herferð. Markmiðið okkar var að skapa góða stemningu fyrir EM í Sviss. Við erum á því að það hafi tekist og erum afar ánægð með hve margir tóku þátt í að sýna stelpunum okkar stuðning í verki.“
Landsbankinn er stoltur bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands og styrkir meðal annars öll yngri landslið, A-landslið karla og kvenna og uppbyggingarstarf íslenskrar knattspyrnu um land allt.
Lúðurinn verður afhentur við hátíðlega athöfn í Háskólabíó 6. mars næstkomandi.









