Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Vör­um við tölvu­pósti með hlekk yfir á falska inn­skrán­ing­ar­síðu

2. mars 2022 - Landsbankinn

Við vörum við tölvupóstum sem sendir hafa verið út í nafni Landsbankans. Í póstinum eru viðtakendur beðnir um að skoða upplýsingar um debetkortafærslur með því að smella á hlekk sem vísar þeim yfir á falsaða innskráningarsíðu fyrir netbankann.

Í þessu tilviki kemur pósturinn frá netfangi sem við fyrstu sýn getur virst vera hjá bankanum. Þegar betur er að gáð sést að svo er ekki, því að í stað þess að netfangið endi á @landsbankinn.is endar það á @landbankinnn.is.

Við sendum aldrei tölvupóst eða SMS með hlekk yfir á innskráningarsíðu netbankans.

Ef þú hefur opnað hlekkinn og skráð þig inn á fölsku síðuna þá eru svikararnir komnir með aðgangsupplýsingarnar þínar. Þá er mikilvægt að þú skráir þig inn með venjulegum hætti, í appinu eða með því að fara á vef bankans og skrá þig inn í netbankann, og breytir lykilorðinu strax.

Þú skalt líka hafa samband við okkur, með því að hringja í s. 410 4000, senda okkur póst á landsbankinn@landsbankinn.is eða í gegnum netspjallið á www.landsbankinn.is.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.