Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn á Ísa­firði flyt­ur í Hafn­ar­stræti 19

Landsbankinn á Ísafirði mun opna í nýju húsnæði í Hafnarstræti 19 föstudaginn 18. júní nk. Þar er betri aðstaða og aðgengi fyrir viðskiptavini og starfsfólk auk þess sem húsið hentar starfseminni betur.
16. júní 2021

Landsbankinn hefur verið á Ísafirði frá 1904, lengst af í Landsbankahúsinu við Pólgötu 1 sem var tekið í notkun árið 1958. Húsið er alls 830 m2 og of stórt fyrir starfsemi bankans. Við byggingu þess var byggt á teikningum Guðjóns Samúelssonar en arkitekt var Bárður Ísleifsson. Húsið var auglýst til sölu í desember 2020. Bankinn hefur samþykkt tilboð í húsið en kaupsamningur hefur ekki verið undirritaður.

Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum í nýju húsakynnunum við Hafnarstræti 19 á föstudaginn!

Þú gætir einnig haft áhuga á
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.