Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn breyt­ir vöxt­um - fast­ir íbúðalána­vext­ir óbreytt­ir

Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,15 prósentustig. Fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum breytast ekki. Vextir á verðtryggðum íbúðalánum, bæði breytilegir og fastir, verða einnig óbreyttir. 
31. maí 2021

Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,15 prósentustig en kjörvextir á verðtryggðum útlánum verða óbreyttir. Vextir óverðtryggðra lána vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,15 prósentustig. Yfirdráttarvextir hækka um 0,10 - 0,25 prósentustig.

Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,20 prósentustig, vextir á reikningum með föstum vöxtum hækka í flestum tilvikum um 0,25 prósentustig en vextir almennra veltureikninga verða óbreyttir.

Ofangreind vaxtaákvörðun Landsbankans er tekin í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands frá 19. maí sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,25 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði og öðrum fjármögnunarkjörum bankans.

Ný vaxtatafla bankans tekur gildi þriðjudaginn 1. júní 2021. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.