Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Hagn­að­ur Lands­bréfa 768 millj­ón­ir á ár­inu 2020

Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 768 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020. Hreinar rekstrartekjur námu 2.182 milljónum króna á árinu og eigið fé var 5.059 milljónir króna í árslok.
24. mars 2021 - Landsbankinn

Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2020.  Helstu niðurstöður eru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 768 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020, samanborið við 489 milljónir á árinu 2019.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 2.182 milljónum króna á árinu 2020, samanborið við 1.683 milljónir króna á árinu 2019.
  • Eigið fé í árslok 2020 var 5.059 milljónir króna samanborið við 4.291 milljónum króna í árslok 2019.
  • Í lok tímabilsins voru eignir í sjóðastýringu rúmir 210 milljarðar króna samanborið við 180 milljarða króna árið áður og auk þess voru í lok árs um 195 milljarðar króna í stýringu samkvæmt eignastýringarsamningum.
  • Starfsmenn voru 20 talsins í árslok, en fjöldi ársverka á árinu var 19.

 Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa: 

 „Þó heimsfaraldur hafi að mörgu leyti sett svip sinn á árið 2020 gekk rekstur Landsbréfa vel á árinu. Sjóðir Landsbréfa skiluðu almennt góðri ávöxtun. Þessi velgengni endurspeglast öðrum þræði í því að stöðugt fjölgar einstaklingum og lögaðilum sem treysta Landsbréfum best fyrir fjármunum sínum. Við hjá Landsbréfum erum einstaklega þakklát fyrir þetta traust og munum halda áfram að leggja metnað okkar í að ávaxta þá fjármuni sem okkur er falið að stýra á ábyrgan hátt. Jafnframt munum við hér eftir sem hingað til hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspegla þær í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, en þar má sem fyrr finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.

Landsbréf - ársreikingur 2020 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
10. nóvember 2026 kl. 10.00, í Hörpu.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.