Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn lækk­ar út­lánsvexti

Ný vaxtatafla tekur gildi þann 14. apríl nk. og styrkir bankinn sig þar með í sessi sem það fjármálafyrirtæki sem býður samkeppnishæfustu útlánavextina.
7. apríl 2020

Ný vaxtatafla tekur gildi þann 14. apríl nk. og styrkir bankinn sig þar með í sessi sem það fjármálafyrirtæki sem býður samkeppnishæfustu útlánavextina.

Breytilegir vextir íbúðalána lækka um 0,10 prósentustig. Fastir óverðtryggðir íbúðalánavextir lækka um 0,30-0,40 prósentustig og fastir verðtryggðir íbúðalánavextir til 60 mánaða lækka um 0,10 prósentustig.

Innlánsvextir í íslenskum krónum verða óbreyttir.

Kjörvextir til fyrirtækja og breytilegir vextir vegna bíla- og tækjafjármögnunar lækka um 0,10 prósentustig. Yfirdráttarvextir verða óbreyttir.

Landsbankinn lækkaði síðast vexti 23. mars sl., í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands.

Vaxtaákvörðun nú tekur einkum mið af nýlegri lækkun bankaskatts, sem var hluti af viðbrögðum stjórnvalda vegna Covid-19 faraldursins. Bankaskattur er lagður á heildarskuldir fjármálafyrirtækja og er skatturinn, þrátt fyrir þessa lækkun, enn töluvert hærri en í öðrum ríkjum sem við berum okkur saman við.

Nánari upplýsingar munu koma fram í nýrri vaxtatöflu bankans.

Þú gætir einnig haft áhuga á
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.