Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn + Ice­land Airwaves kynna: Una Schram

Landsbankinn hitar upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Iceland Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni mun bankinn birta eitt myndband í einu og fyrsti tónlistarmaðurinn í ár var Krassasig. Nú er komið að myndbandi númer tvö í röðinni og er það með söngkonunni Unu Schram.
5. september 2019

Landsbankinn hitar upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Iceland Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni mun bankinn birta eitt myndband í einu og fyrsti tónlistarmaðurinn í ár var Krassasig. Nú er komið að myndbandi númer tvö í röðinni og er það með söngkonunni Unu Schram. Una Schram hefur verið að semja lög frá 10 ára aldri, en það var ekki fyrr en á þessu ári sem hún sendi frá sér frumsamda tónlist. Ástin er Unu stöðugur innblástur og lögin á þröngskífunni hennar „Energy“ fjalla meira og minna öll um kærastann hennar með einum eða öðrum hætti. Hann er enskumælandi og það er ekki síst svo hann skilji sem henni er mikið í mun að syngja á ensku.

oembed

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin dagana 6. - 9. nóvember í miðborg Reykjavíkur. Landsbankinn hefur verið einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar frá árinu 2014. Í tengslum við hátíðina heldur bankinn úti vefnum Landsbankinn.is/icelandairwaves og þar hafa verið birt myndbönd og viðtöl við unga og upprennandi tónlistarmenn í gegnum árin. Á vefnum er hægt að fá forsmekkinn að einni stærstu tónlistarhátíð ársins og sjá dæmi um þá miklu grósku sem er í íslensku tónlistarlífi. Einnig geta viðskiptavinir Landsbankans keypt miða á sérstöku Landsbankaverði í gegnum vefinn.

Off-venue tónleikar

Landsbankinn mun einnig standa að svokölluðum Off-venue tónleikum í tengslum við hátíðina. Nánari upplýsingar um tíma og staðsetningu koma síðar.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Reykjastræti
19. júní 2025
Útibú TM er flutt í Reykjastræti 6
Útibú TM á höfuðborgarsvæðinu flutti í dag, 19. júní 2025, í útibú Landsbankans í Reykjastræti 6 í miðborg Reykjavíkur. Þar tekur starfsfólk TM og bankans vel á móti viðskiptavinum.
Yayland
4. júní 2025
YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag – Yayland
Fjártæknifyrirtækið YAY og Landsbankinn hafa stofnað nýtt félag, Yayland ehf., sem mun sérhæfa sig í þróun, sölu, útgáfu og rekstri á stafrænum og hefðbundnum inneignarkortum, gjafabréfum og vildarkortum. Yayland mun taka yfir alla gjafakortastarfsemi YAY á Íslandi og jafnframt alla útgáfu og rekstur á inneignarkortum Landsbankans.
Námsstyrkir 2025
3. júní 2025
8 milljónum úthlutað í námsstyrki
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 28. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjötta sinn og heildarupphæð styrkjanna nemur átta milljónum króna. Alls bárust um 450 umsóknir í ár.
Skólahreysti 2025
26. maí 2025
Holtaskóli bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2025
Holtaskóli er sigurvegari Skólahreysti 2025 og ber því titillinn Skólahreystimeistari með rentu! Úrslitin réðust í æsispennandi lokakeppni tólf grunnskóla fyrir troðfullum sal í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ, laugardagskvöldið 24. maí.
Landsbankinn
23. maí 2025
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 3. júní 2025.
Nasdaq bjalla
16. maí 2025
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans ráðgjafi ríkisins í vel heppnuðu Íslandsbankaútboði
Áhugi fjárfesta reyndist mjög mikill og skilaði sér í heildareftirspurn upp á um 190 milljarða króna. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá mikinn áhuga og þátttöku almennings. Í útboðinu voru seldir 850.000.007 hlutir á genginu 106,56 krónur á hlut, sem samsvarar heildarvirði upp á 90,6 milljarða króna. Þetta er stærsta hlutafjárútboð sem haldið hefur verið á Íslandi.
Austurstræti 11
15. maí 2025
Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 til sölu
Landsbankinn auglýsir til sölu hús bankans við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 í Reykjavík. Heildarstærð húsanna er 5.836 fermetrar og þar ef eru 1.380 fermetrar í kjallara. Húsin verða seld í einu lagi.
Nasdaq bjalla
13. maí 2025
Upplýsingar um útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka
Útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka hófst kl. 8.30 þriðjudaginn 13. maí og gert er ráð fyrir að því ljúki kl. 17.00 fimmtudaginn 15. maí.
Austurbakki
28. apríl 2025
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í A-
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að lánshæfismat Landsbankans til langs tíma hefði verið hækkað úr BBB+ í A-. Lánshæfismatið hefur ekki verið hærra frá árinu 2014, þegar S&P hóf að veita bankanum lánshæfiseinkunnir.
16. apríl 2025
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 22. apríl nk.