Fréttir

Hag­sjá: Af­koma Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðs­ins á ár­inu 2018

Rekstur Íslenska lífeyrissjóðsins gekk vel á árinu 2018. Sjóðurinn hélt áfram að vaxa og sjóðsfélögum að fjölga. Ávöxtun á árinu 2018 endurspeglaði þróun á mörkuðum en nafnávöxtun deilda sjóðsins var á bilinu 3,6 til 5,1%.
12. apríl 2019

Rekstur Íslenska lífeyrissjóðsins gekk vel á árinu 2018. Sjóðurinn hélt áfram að vaxa og sjóðsfélögum að fjölga. Ávöxtun á árinu 2018 endurspeglaði þróun á mörkuðum en nafnávöxtun deilda sjóðsins var á bilinu 3,6 til 5,1%. Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar var 1,1%. Meðalatal hreinnar raunávöxtunar samtryggingardeildar sl. fimm ár var 4,7% og 4,1% sl. tíu ár. Hrein raunávöxtun Líf I, sem er stærsta séreignardeild sjóðsins, var 0,4% á árinu 2018. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar í Líf I sl. fimm ár var 4,6% og 5,3% sl. tíu ár.

Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkar

Hrein eign til greiðslu lífeyris var 80,4 milljarðar króna í lok árs 2018 og hafði vaxið um 9,7 milljarða króna frá fyrra ári en það samsvarar 13,7% vexti á árinu.

Fjölgun sjóðsfélaga

Virkum sjóðsfélögum, þ.e. einstaklingum sem að jafnaði greiða mánaðarleg iðgjöld til sjóðsins, hélt áfram að fjölga og voru þeir 15.524 í árslok 2018 samanborið við 13.245 í árslok 2017. Það samsvarar 15,2% fjölgun á árinu. Í lok árs 2018 áttu 37.265 sjóðsfélagar réttindi í sjóðnum og hafði þeim fjölgað um 2.464 á árinu. Fjöldi virkra lífeyrisþega var 531 talsins ár árinu 2018 samanborið við 454 á árinu 2017.

Iðgjöld

Iðgjöld sjóðfélaga á árinu 2018 námu 8,9 milljörðum króna samanborið við 7,4 milljarða króna á árinu 2017 sem er 20,3% hækkun á milli ára.

Lífeyrisgreiðslur og greiðslur inn á lán

Lífeyrisgreiðslur á árinu 2018 námu 911 milljónum króna samanborið við 776 milljónir króna árið 2017. Á árinu 2018 greiddu 2.279 sjóðfélagar samtals 1,4 milljarða króna inn á fasteignalán.

Tryggingafræðileg staða

Tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar versnaði frá fyrra ári en í lok árs 2018 voru heildareignir deildarinnar 1,9% lægri en heildarskuldbindingar.

Sjálfstæður lífeyrissjóður

Íslenski lífeyrissjóðurinn er sjálfstæður lífeyrissjóður sem starfar skv. lögum um lífeyrissjóði og er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Á síðasta ári var samþykktum sjóðsins breytt á þann veg að frá og með næsta ársfundi eru allir fimm stjórnarnmenn kosnir af sjóðsfélögum.

Ársfundur 2019

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn föstudaginn 3. maí kl. 17.00 í aðalútibúi Landsbankans Austurstræti 11.

Ársreikningur Íslenska lífeyrissjóðsins

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur