Vinnu­mark­að­ur sterk­ur þrátt fyr­ir trufl­an­ir vegna far­ald­urs

Starfandi fólki í janúar 2022 fjölgaði um 12,3% miðað við sama tíma 2020. Vinnutími styttist um 1,8% á sama tíma þannig að heildarvinnustundum fjölgaði um 10,5% milli ára. Þetta er tíundi mánuðurinn í röð sem heildarvinnustundum fjölgar og hefur aukningin verið mikil síðustu mánuði.
28. febrúar 2022 - Hagfræðideild

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að um 211.800 manns hafi verið á vinnumarkaði í janúar 2022, sem jafngildir 79,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru um 204.800 starfandi og um 7.000 atvinnulausir og í atvinnuleit, eða um 3,3% af vinnuaflinu.

Starfandi fólki fjölgaði um 22.500 milli ára í janúar og atvinnulausum fækkaði um 10.100 á sama tíma. Hlutfall starfandi var 76,5% í janúar og hækkaði um 7 prósentustig frá janúar 2020. Skráð atvinnuleysi mældist hæst í janúar 2021 og tók að lækka upp frá því þannig að breytingarnar á einu ári hafa verið verulegar.

Atvinnuþátttaka hefur aukist á þessu ári og var 79,1% nú í janúar sem er 3,1 prósentustigi hærra en í janúar 2021. Sé miðað við 12 mánaða hlaupandi meðaltal var atvinnuþátttaka mest um mitt ár 2017, en þá fór hún upp í 82%. Samsvarandi tala nú er 79% og hefur atvinnuþátttaka aukist nokkuð stöðugt allt síðasta ár á þennan mælikvarða.

Atvinnuleysi, samkvæmt mælingum Hagstofunnar, var 3,3% í janúar sem er 5,3 prósentustigum lægra en á sama tíma í fyrra. Almennt atvinnuleysi skráð hjá Vinnumálastofnun var hins vegar 5,2% og hafði minnkað um 6,4 prósentustig milli ára.

Vinnutími hefur styst töluvert á undanförnum misserum. Venjulegur vikulegur vinnutími var þannig 36,7 stundir nú í janúar sem er 0,7 stundum styttra nú í janúar en í janúar 2020. Sveiflur eru miklar í vinnutíma milli mánaða, en sé horft til 12 mánaða hlaupandi meðaltals er vinnutími nú rúmlega klukkustund styttri en hann var í upphafi ársins 2020. Áherslur í kjarasamningum um styttingu vinnutíma koma þannig greinilega fram í niðurstöðum vinnumarkaðskönnunar Hagstofunnar.

Starfandi fólki í janúar 2022 fjölgaði um 12,3% miðað við sama tíma 2020. Vinnutími styttist um 1,8% á sama tíma þannig að heildarvinnustundum fjölgaði um 10,5% milli ára. Þetta er tíundi mánuðurinn í röð sem heildarvinnustundum fjölgar og hefur aukningin verið mikil síðustu mánuði.

Lesa Hagsjána í heild:

Hagsjá: Vinnumarkaður sterkur þrátt fyrir truflanir vegna faraldurs

Þú gætir einnig haft áhuga á
Evrópsk verslunargata
22. júlí 2024
Vikubyrjun 22. júlí 2024
Í síðustu viku birtust gögn sem gáfu til kynna talsverðan kraft á íbúðamarkaði um þessar mundir. Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% milli mánaða í júní og vísitala leiguverðs um 2,5%.
Hús í Reykjavík
18. júlí 2024
Spenna á íbúðamarkaði
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,4% á milli mánaða í júní. Árshækkun vísitölu íbúðaverðs jókst úr 8,4% í 9,1% en svo mikil hefur árshækkunin ekki verið síðan í febrúar 2023. Leiguverð hækkaði einnig á milli mánaða í júní, alls um 2,5%. Mikil velta var á íbúðamarkaði í júní og ljóst að íbúðamarkaður hefur tekið verulega við sér.
Gönguleið
15. júlí 2024
Vikubyrjun 15. júlí 2024
Erlendir ferðamenn voru 9% færri í júní á þessu ári en í júní í fyrra. Atvinnuleysi var 3,1% í júní og er áfram lítillega meira en á sama tíma í fyrra.
Fataverslun
10. júlí 2024
Spáum að verðbólga aukist lítillega og verði 5,9% í júlí 
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,15% á milli mánaða í júlí og að verðbólga aukist úr 5,8% í 5,9%. Við gerum ráð fyrir að júlímánuður verði nokkuð dæmigerður þar sem sumarútsölur verða til lækkunar á vísitölunni en flugfargjöld til útlanda til hækkunar. Við spáum nokkurn veginn óbreyttri verðbólgu í ágúst og september, en að verðbólga hjaðni í 5,4% í október. 
8. júlí 2024
Vikubyrjun 8. júlí 2024
Hátt vaxtastig hefur hvatt til sparnaðar og hægt á eftirspurn í hagkerfinu. Innlán heimila voru 20% meiri í maí síðastliðnum en í maí í fyrra, samkvæmt nýbirtum Hagvísum Seðlabanka Íslands. Óbundin innlán hafa aukist langmest.
1. júlí 2024
Fréttabréf Hagfræðideildar 1. júlí 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Litríkir bolir á fataslá
1. júlí 2024
Vikubyrjun 1. júlí 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% í júní. Verðbólga mældist því 5,8% og lækkaði úr 6,2%. Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum í mars og apríl dróst saman um 4,6% að raunvirði og launavísitalan hækkaði um 0,2% í maí, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í síðustu viku.
Flugvél á flugvelli
27. júní 2024
Verðbólga í takt við væntingar – lækkar í 5,8%
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,48% á milli mánaða í júní og við það lækkaði ársverðbólga úr 6,2% í 5,8%. Reiknuð húsaleiga, hækkandi flugfargjöld til útlanda og verðhækkun á hótelgistingu höfðu mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Á móti lækkaði verð á fötum og skóm, húsgögnum og heimilisbúnaði og ökutækjum á milli mánaða í júní.
25. júní 2024
Velta í hagkerfinu minnkar á milli ára
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum dróst saman um 4,6% að raunvirði í mars og apríl og um 2% í janúar og febrúar samkvæmt nýbirtum gögnum Hagstofunnar. Þróunin er ólík eftir útflutningsgreinum. Ferðaþjónusta eykst lítillega á milli ára, velta í sjávarútvegi og álframleiðslu minnkar en velta í lyfjaframleiðslu eykst til muna.
Bílar
25. júní 2024
Merki um lítilsháttar kólnun á vinnumarkaði
Atvinnuleysi er nú aðeins meira en á sama tíma í fyrra og laun hækka minna. Nýbirt launavísitala sýnir 0,2% hækkun á milli mánaða í maí og hafa laun nú hækkað um 6,7% á síðustu tólf mánuðum. Allar líkur eru á að á þessu ári hækki laun mun minna en á síðasta ári, enda hafa nýir kjarasamningar minni hækkanir í för með sér en þeir síðustu.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur