Vikubyrjun 7. janúar
Óhætt er að segja að seinasta ár hafi ekki verið gjöfult á hlutabréfamörkuðum, hvorki hér heima né í helstu viðskiptalöndum okkar. Þannig endaði bandaríska S&P 500 vísitalan árið um 6,2% lægri en í upphafi árs. Helstu hlutabréfavístölur evrópskra markaða lækkuðu nokkuð meira í fyrra.
7. janúar 2019
Vikan framundan
- Á morgun birtir Seðlabankinn tölur um gjaldeyris- og krónumarkað og útreikning á raungengi
- Á miðvikudag birta Lánamál ríkisins mánaðarlegt Markaðsupplýsingarit sitt
Mynd vikunnar
Óhætt er að segja að seinasta hafi ekki verið gjöfult á hlutabréfamörkuðum, hvorki hér heima né í helstu viðskiptalöndum okkar. Þannig endaði bandaríska S&P 500 vísitalan árið um 6,2% lægri en í upphafi árs. Helstu evrópsku hlutabréfavístölur lækkuðu nokkuð meira, t.d. lækkaði breska FTSE 500 um 12,5%, þýska DAX um 18,3% og franska CAC 40 um 11,0%. Til samanburðar þá lækkaði íslenska úrvalsvísitalan um 1,3% í fyrra.
Það helsta frá seinustu tveimur vikum
- Samkvæmt fundargerð peningastefnunefndar greiddi einn nefndarmaður atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um óbreytta vexti á seinasta fundi nefndarinnar og vildi frekar hækka vexti um 0,25 prósentur.
- Verðbólgan jókst nokkuð í desember og mældist 3,7% í samanburði við 3,3% í nóvember.
- Launavísitalan hækkaði um 0,15% milli október og nóvember.
- Seðlabankinn birti ársfjórðungslega Hagvísa.
- Heildarfjöldi gistinátta í nóvember var nánast óbreyttur milli ára.
- Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember.
- Lánamál ríkisins birtu ársáætlun fyrir 2019 og ársfjórðungsáætlun fyrir 1F 2019.
- Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn birtu útgáfuáætlanir fyrir 2019.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á
9. sept. 2024
Í þessari viku ber hæst útgáfa á tölum um fjölda ferðamanna í ágúst og skráð atvinnuleysi á morgun. Í síðustu viku birtist fundargerð peningastefnunefndar þar sem fram kom að allir nefndarmenn voru sammála um að halda vöxtum óbreyttum á síðasta fundi, ólíkt því sem var síðustu þrjá fundi þar áður þar sem einn nefndarmaður vildi lækka vexti um 0,25 prósentustig.
6. sept. 2024
Meðfylgjandi er mánaðarlegt yfirlit sértryggðra skuldabréfa.
5. sept. 2024
Halli mældist á viðskiptum við útlönd á öðrum fjórðungi þessa árs, ólíkt öðrum ársfjórðungi í fyrra, þegar lítils háttar afgangur mældist. Það var afgangur af þjónustujöfnuði og frumþáttatekjum, en halli á vöruskiptum og rekstrarframlögum. Hrein staða þjóðarbúsins versnaði lítillega á fjórðungnum.
3. sept. 2024
Mánaðarlegt fréttabréf frá Hagfræðideild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
2. sept. 2024
Verðbólga lækkaði óvænt á milli mánaða í ágúst. Hagkerfið dróst örlítið saman á milli ára á öðrum ársfjórðungi, en á sama tíma er nú ljóst að hagvöxtur í fyrra var meiri en áður var talið og einnig að samdráttur var minni á fyrsta ársfjórðungi. Í þessari viku birtir Seðlabankinn gögn um greiðslujöfnuð við útlönd og fundargerð peningastefnunefndar.
30. ágúst 2024
Hagkerfið dróst örlítið saman á milli ára á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Á sama tíma er nú ljóst að hagvöxtur var meiri í fyrra en áður var talið og samdráttur einnig minni á fyrsta ársfjórðungi. Umsvif í hagkerfinu eru því meiri en áður var talið þótt landsframleiðsla dragist saman.
29. ágúst 2024
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í ágúst, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Ísland. Ársverðbólga lækkar því úr 6,3% í 6,0%, um 0,3 prósentustig. Vísitalan hækkaði nokkuð minna en við gerðum ráð fyrir, en við spáðum óbreyttri verðbólgu. Það sem kom okkur mest á óvart var lækkun á menntunarliðnum, sem skýrist af niðurfellingu á skólagjöldum einstaka háskóla. Verð á matarkörfunni lækkaði í fyrsta skiptið í þrjú ár.
27. ágúst 2024
Afgangur af þjónustuviðskiptum náði ekki að vega upp halla af vöruviðskiptum á öðrum ársfjórðungi, ólíkt því sem var fyrir ári síðan. Bæði var meiri halli af vöruviðskiptum og minni afgangur af þjónustuviðskiptum en á öðrum fjórðungi síðasta árs.
26. ágúst 2024
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum í síðustu viku, eins og búist var við. Nokkur kraftur er í fasteignamarkaðnum og vísitala íbúðaverðs og vísitala leiguverðs hækkuðu báðar þó nokkuð í júlí. Í þessari viku fáum við verðbólgutölur fyrir ágústmánuð og þjóðhagsreikninga annars ársfjórðungs.
20. ágúst 2024
Hagstofan hefur frá því í júní notað nýja aðferð við að mæla kostnað við búsetu í eigin húsnæði. Hefði Hagstofan ekki breytt um aðferð væri verðbólgumælingin nú líklega hærri. Um næstu áramót áforma stjórnvöld að breyta innheimtu gjalda á ökutæki sem mun að líkindum einnig hafa áhrif til lækkunar á mældri verðbólgu.