29. maí 2018
Samantekt
Vísitala neysluverðs lækkaði óvænt um 0,09% milli apríl og maí og mælist 12 mánaða verðbólga nú 2,0% í samanburði við 2,3% í apríl. Mælist verðbólga því áfram undir markmiði annan mánuðinn í röð. Eftir tveggja ára verðhjöðnun á almennu verðlagi án húsnæðis mældist 0,2% verðbólga á þennan mælikvarða nú í maí.
Lesa Hagsjána í heild
Hagsjá: Verðbólga án húsnæðis jákvæð í fyrsta sinn í tvö ár (PDF)
Þú gætir einnig haft áhuga á

13. feb. 2025
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,98% á milli mánaða í febrúar og að verðbólga hjaðni úr 4,6% í 4,3%. Við búumst við áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,7% í maí.

10. feb. 2025
Peningastefnunefnd lækkaði vexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku. Í þessari viku koma tölur um skráð atvinnuleysi og fjölda brottfara frá Leifsstöð auk þess sem Hagstofan framkvæmir verðkannanir vegna vísitölu neysluverðs. Uppgjörstímabilið í Kauphöllinni er síðan enn í fullum gangi.

3. feb. 2025
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

3. feb. 2025
Halli af vöruviðskiptum jókst í fyrra, en ekki með sama hraða og síðustu tvö ár þar á undan. Að það hægi á aukningunni gæti verið merki um að jafnvægi sé að aukast í hagkerfinu, en á móti kemur að innflutningsverðmæti hafa aldrei verið meiri sem gæti verið merki um aukin umsvif.

3. feb. 2025
Verðbólga lækkaði á milli mánaða í janúar, úr 4,8% í 4,6%. Við eigum von á að Seðlabankinn lækki vexti um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn. Fyrstu uppgjör fyrir árið 2024 komu í síðustu viku, en uppgjörstímabilið heldur áfram í þessari viku.

30. jan. 2025
Við spáum 0,5 prósentustiga vaxtalækkun í næstu viku. Verðbólga mældist 4,6% í janúar. Hún hjaðnaði í takt við spá okkar og hefur þokast niður um 0,5 prósentustig frá síðustu vaxtaákvörðun. Hægt hefur á íbúðaverðshækkunum og verðbólguvæntingar virðast stöðugri en áður. Laun hafa hækkað mun minna en áður og vinnumarkaður hefur leitað í eðlilegra horf.

30. jan. 2025
Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27% á milli mánaða í janúar, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 4,8% í 4,6%. Við eigum enn von á að verðbólga hjaðni næstu mánuði og verði 3,9% í apríl.

27. jan. 2025
Í vikunni birtast verðbólgutölur fyrir janúar. Við eigum von á að verðbólga hjaðni og mælist 4,6%. Í síðustu viku birtist vísitala íbúðaverðs fyrir desember sem sýndi lækkun upp á 0,6% á milli mánaða. Vísitala leiguverðs sýndi einnig lækkun á milli mánaða, um 0,9%.

24. jan. 2025
Launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 6,6% árið 2024. Á síðustu mánuðum hefur hægt verulega á launahækkunum, bæði vegna minni kjarasamningsbundinna hækkana en síðustu ár og minna launaskriðs. Kaupmáttur hefur því sem næst staðið í stað og óhætt að segja að staðan á vinnumarkaði styðji nú mun betur við verðstöðugleika en áður.

20. jan. 2025
Kortaveltutölur sem komu í síðustu viku voru nokkuð sterkar og sýndu að kortavelta heimilanna jókst nokkuð á milli ára í desember. Það voru tvö uppgjör í síðustu viku, Hagar og Ölgerðin, en fjárhagsár þessa tveggja félaga er, ólíkt öðrum félögum í kauphöllin, ekki hið sama og almanaksárið. Í vikunni fram undan fáum við vísitölur íbúðaverðs og leiguverðs frá HMS.