Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­banka­app­ið val­ið app árs­ins

Landsbankaappið var valið app ársins þegar Íslensku vefverðlaunin voru afhent þann 22. febrúar síðastliðinn. Appið er einfalt og þægilegt í notkun en með því geta viðskiptavinir Landsbankans sinnt bankaviðskiptum sínum hvar og hvenær sem er.
26. febrúar 2019 - Landsbankinn

Landsbankaappið var valið app ársins þegar Íslensku vefverðlaunin voru afhent þann 22. febrúar síðastliðinn. Appið er einfalt og þægilegt í notkun en með því geta viðskiptavinir Landsbankans sinnt bankaviðskiptum sínum hvar og hvenær sem er.

Viðskiptavinir fá skýra og einfalda samantekt á fjárhagslegri stöðu sinni um leið og þeir skrá sig inn. Síðan er auðvelt að kafa dýpra og fá nánari upplýsingar um hvern þjónustuþátt. Innskráningarferlið er einfalt, en hægt er að skrá sig inn með fingrafari, rafrænum skilríkjum eða notendanafni og lykilorði.

Samtök vefiðnaðarins (SVEF) standa að Íslensku vefverðlaununum en SVEF eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Íslensku vefverðlaunin hafa verið haldin frá árinu 2000 og eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Landsbankaappið bar sigur úr býtum í flokknum app ársins. Í umsögn dómnefndar segir: „Í appinu er fljótlegt að framkvæma allar meginaðgerðir og mikil áhersla lögð á aðgengi. Valmynd er vel uppsett. Fallegt, þægilegt og gott í notkun.“

Landsbankinn kynnti á árinu 2018 fjölda nýjunga í stafrænni þjónustu sem er ætlað að gera líf viðskiptavina einfaldara og bankaviðskipti auðveldari. Fjallað er um nýjungarnar í ársskýrslu Landsbankans sem kom út í febrúar.

Landsbankaappið er aðgengilegt í App Store og Google Play. Þeir sem ekki eru þegar viðskiptavinir bankans geta skráð sig í viðskipti á örfáum mínútum með því að sækja appið og auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

Landsbankaappið

Þú gætir einnig haft áhuga á
Skólahreysti 2026
26. maí 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði Skólahreysti 2026 eftir spennandi úrslitakeppni sem fram fór að Varmá í Mosfellsbæ laugardaginn 23. maí. Keppnin var æsispennandi og skemmtileg en liðið stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig eftir glæsilega frammistöðu í öllum greinum keppninnar.
Landsbankinn
21. maí 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi föstudaginn 22. maí 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi fimmtudaginn 28. maí 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Jón Þ. Grímsson
20. maí 2026
Jón Þór Grímsson nýr yfirlögfræðingur Landsbankans
Jón Þór Grímsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsbankans.
11. maí 2026
Opið fyrir umsóknir í Menningarnæturpott Landsbankans
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans 2026. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans en bankinn hefur verið máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.
17. apríl 2026
Hagkerfi í hægum vexti - hagspá til 2028
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Merki eru um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki.
1. apríl 2026
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 7. apríl nk.
26. mars 2026
Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus
Alfa Framtak hefur samið við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus.
Samstarfssamningur
26. mars 2026
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta framlengja samstarfssamning
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta (FS) hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára. Á samningstímanum mun Landsbankinn annast alla almenna bankaþjónustu og greiðslumiðlun fyrir rekstrareiningar FS. Bankinn mun einnig sjá um eignastýringu og ávöxtun á sjóðum FS og saman munu FS og Landsbankinn standa að ýmsum verkefnum og viðburðum.
Eystra horn
23. mars 2026
Hagnaður Landsbréfa 978 milljónir króna á árinu 2025
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2025.