Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Alfa Fram­tak kaup­ir Nóa Síríus

26. mars 2026

Alfa Framtak hefur samið við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus.

AF3, sjóður í rekstri Alfa Framtaks, hefur gengið frá samkomulagi við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus. Við kaupin færist Nói Síríus aftur í innlenda eigu eftir árangursríkan tíma undir eignarhaldi Orkla Snacks. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Nói Síríus hf. var stofnað árið 1920 og er eitt þekktasta framleiðslu- og markaðsfyrirtæki landsins. Fyrirtækið hefur frá stofnun sinnt framleiðslu og dreifingu á súkkulaði og öðrum matvörum. Orkla Snacks hefur umbreytt fyrirtækinu úr rótgrónu fjölskyldufyrirtæki í framsýnt framleiðslufyrirtæki með skýra áherslu á gæði og sterk vörumerki. Alfa Framtak mun byggja á þessum sterka grunni og styðja við næsta vaxtarskeið félagsins.

Alfa Framtak rekur sérhæfða sjóði og býr yfir víðtækri reynslu af fjárfestingu, vexti og umbreytingarstarfi. Markmið Alfa Framtaks er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum sterkari af sér við sölu til að marka jákvæð spor í íslensku viðskiptalífi. Í dag eru þrír sjóðir í rekstri Alfa Framtaks, þ.e. AF1, AF2 og AF3. Áskriftarloforð eru samtals um 45 milljarðar króna.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og LOGOS voru ráðgjafar seljanda í viðskiptunum. Ráðgjafar kaupanda voru BBA//FJELDCO og KPMG.

Á myndinni eru frá vinstri: Rolf Arn­ljot Strøm, fjár­mála­stjóri Orkla Snacks, Sigríður Hrefna Hrafn­kelsdóttir, for­stjóri Nói Síríus og Markús Hörður Árna­son, fjár­festingar­stjóri hjá Alfa Fram­tak.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.