Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta framlengja samstarfssamning

Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta (FS) hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára. Á samningstímanum mun Landsbankinn annast alla almenna bankaþjónustu og greiðslumiðlun fyrir rekstrareiningar FS. Bankinn mun einnig sjá um eignastýringu og ávöxtun á sjóðum FS og saman munu FS og Landsbankinn standa að ýmsum verkefnum og viðburðum.
Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum og Heiður Anna Helgadóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta, undirrituðu samninginn.
FS er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið FS að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. FS rekur Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann, Hámu, Hámu salatbar og Bókakaffi stúdenta.
Heiður Anna Helgadóttir, framkvæmdastjóri FS, segir: „Við hjá FS erum ánægð og spennt fyrir áframhaldandi samstarfi við Landsbankann, enda hefur það verið farsælt og gott undanfarin ár. Það er margt á döfinni hjá FS á næstu misserum og við hlökkum til að taka fleiri skref í átt að aukinni þjónustu við stúdenta með Landsbankann sem einn af okkar bakhjörlum.“
Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipt- og menningar hjá Landsbankanum, segir: „Samstarf Landsbankans og FS hefur gengið mjög vel og verið árangursríkt, eins og meðal annars sést á myndarlegri uppbyggingu stúdentaíbúða á undanförnum árum og vel heppnuðum viðburðum sem við höfum staðið að saman. Við hlökkum til áframhaldandi samvinnu.“









