Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bréf skila góð­um ár­angri á fyrri hluta árs­ins 2026

Eystra horn
27. ágúst 2026 - Landsbankinn

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2026.

Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður Landsbréfa eftir skatta var tæpar 603 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2026 samanborið við tæpar 457 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.  
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.367 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2026 samanborið við 1.142 milljón króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Eigið fé í lok tímabils var rúm 3.971 milljón króna samanborið við rúmar 4.368 milljónir króna í árslok 2025, en félagið greiddi móðurfélagi sínu Landsbankanum 1.000 milljóna króna arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 74,29% við lok fyrri árshelmings.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu og hagnaður á tímabilinu endurspeglar traustan rekstur félagsins.  Markaðsaðstæður héldu áfram að vera krefjandi á fyrri hluta ársins og væntingar um lægri verðbólgu hafa ekki gengið eftir og vaxtastig hefur haldist hátt. Það er sameiginlegt verkefni allra að stuðla að lægri verðbólgu til að tryggja stöðugleika til framtíðar, ekki hvað síst nú þegar glögg merki um samdrátt eru til staðar í hagkerfinu.  Ávöxtun sjóða Landsbréfa var misjöfn á tímabilinu eftir tegundum sjóða en ásættanleg í ljósi markaðsaðstæðna. Landsbréf eru sem fyrr leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi og rekur fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta og erum við þakklát fyrir það traust sem þúsundir viðskiptavina hafa sýnt okkur á liðnum árum.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
Hermann M. Þórisson, Friðrik Kristjánsson, Davíð Ólafsson, Jens Hilmar Wessman
28. ágúst 2026
Landsbankinn til ráðgjafar við sölu Alvogen
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Alvogen ehf., lyfjaheildsölu sem starfar á íslenskum markaði. Það var Orbital ehf. sem festi kaup á félaginu.
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.