Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!

Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis stór tímamót fyrir TM sem fagnar 70 ára afmæli. Það er því sannarlega tilefni til að gera sér glaðan dag saman.
Afmælisveisla um allt land
Boðið verður upp á léttar veitingar og góða stemningu í 30 útibúum Landsbankans víðs vegar um land. Við hvetjum viðskiptavini til að líta við og fagna þessum tímamótum með okkur.
Veisluhöld verða í eftirfarandi útibúum
- Höfuðborgarsvæðið: Reykjastræti, Borgartún, Mjódd, Grafarholt, Hamraborg og Hafnarfjörður.
- Suðurnes og Vesturland: Reykjanesbær, Akranes og Snæfellsnes (Ólafsvík).
- Vestfirðir og Norðurland vestra: Ísafjörður, Patreksfjörður, Hvammstangi, Blönduós og Sauðárkrókur.
- Norðurland: Akureyri, Dalvík, Húsavík og Raufarhöfn.
- Austurland: Þórshöfn, Vopnafjörður, Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Neskaupstaður, Djúpivogur og Hornafjörður.
- Suðurland: Selfoss, Reykholt, Þorlákshöfn, Hvolsvöllur og Vestmannaeyjar.
Útibúin á Breiðdalsvík, Djúpavogi, Kópaskeri og Skagaströnd eru ekki opin á fimmtudögum og því verða ekki veisluhöld þar í þetta sinn.
Kíktu við í útibú nálægt þér og fagnaðu með okkur.
Við hlökkum til að sjá þig!









