Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Tólf hlutu styrk úr Gleði­göngupotti Hinseg­in daga og Lands­bank­ans

5. ágúst 2026

Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.

Gleðigöngupotturinn hefur það markmið að styrkja einstaklinga og hópa sem vilja taka þátt í Gleðigöngunni með fjölbreyttum, áhugaverðum og táknrænum atriðum.

Veittir voru styrkir fyrir alls 1.550.000 kr. og var hver styrkur á bilinu 70.000–320.000 krónur.

Eftirfarandi atriði hlutu styrki úr Gleðigöngupottinum 2026

  • Bangsafélagið
  • BDSM á Íslandi
  • Dyke Nite Reykjavík
  • Hinsegin félagsmiðstöð S78 og Tjarnarinnar
  • Hinsegin kórinn
  • HinUng
  • HIV Ísland  
  • Let them eat cake
  • Q félag hinsegin stúdenta
  • Samtökin 78
  • Skátarnir
  • Trans Ísland

Gleðigöngupotturinn er samvinnuverkefni Landsbankans og Hinsegin daga en bankinn hefur verið stoltur bakhjarl Hinsegin daga frá upphafi.

Við óskum styrkþegunum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með Gleðigöngunni í ár!

Þú gætir einnig haft áhuga á
Listahátíð í Reykjavík 2026
2. júní 2026
Listahátíð í Reykjavík er hafin – tvær sýningar í Landsbankanum
Listahátíð í Reykjavík hófst formlega með glæsilegri opnunarhátíð síðastliðinn laugardag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Námsstyrkir 2026
29. maí 2026
Tíu milljónum úthlutað í námsstyrki
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 27. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjöunda sinn og var heildarupphæð þeirra hækkuð í 10 milljónir króna í ár. Alls bárust um 330 umsóknir.
Skólahreysti 2026
26. maí 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði Skólahreysti 2026 eftir spennandi úrslitakeppni sem fram fór að Varmá í Mosfellsbæ laugardaginn 23. maí. Keppnin var æsispennandi og skemmtileg en liðið stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig eftir glæsilega frammistöðu í öllum greinum keppninnar.