Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn breyt­ir vöxt­um

Landsbankinn
21. ágúst 2026

Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.

Fastir vextir til 60 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum haldast óbreyttir.

Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Vextir á íbúðalánum

  • Fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,10 prósentustig.
  • Fastir vextir til 12 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,20 prósentustig.
  • Fastir vextir til 36 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,10 prósentustig.
  • Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig. 

Aðrir útlánavextir

  • Kjörvextir á óverðtryggðum lánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.

Innlánavextir

  • Vextir á sparireikningum í appi hækka um 0,25 prósentustig.
  • Vextir á öðrum óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig.
  • Vextir á óverðtryggðum fastvaxtareikningum hækka um allt að 0,20 prósentustig.
  • Vextir á reikningum í erlendri mynt taka mið af vaxtastigi viðkomandi myntar.

Breytingarnar eru gerðar í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 19. ágúst sl. en þá hækkaði Seðlabankinn meginvexti um 0,25 prósentustig.

Breytingar á vöxtum útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka. Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.

Þú gætir einnig haft áhuga á
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.